Skuldir heimilanna jukust um 2,6 milljarða 22. febrúar 2007 12:01 Glitnir banki.
Skuldir heimilanna við innlánsstofnanir, viðskiptabanka og sparisjóði, námu 716 milljörðum króna í lok janúar. Mestur hluti skuldanna eru íbúðalán sem byrjað var að veita í lok ágúst árið 2004 en þau námu 389 milljörðum króna og jukust um 2,6 milljarða krónur á milli mánaða. Þá hafa yfirdráttarlán heimilanna aukist nokkuð en þau hafa ekki verið hærri síðan í febrúar í fyrra, að sögn greiningardeildar Glitnis. Greiningardeildin segir í Morgunkorni sínu í dag að nær helming aukningarinnar í mánuðinum megi skýra með verðbótum. Til viðbótar því komi vextir. Þá bendir deildin jafnframt á að bankarnir hafi ekki veitt jafn lítið af íbúðalánum í einum mánuði frá því að þeir fóru inn á þann markað í ágúst 2004. Greiningardeildin bendir á að yfirdráttarlán heimilanna hafi numið 72 milljörðum króna á sama tíma og hafi þau hækkað um tæplega 5 milljarða krónur í mánuðinum. Yfirdráttarlánin hafa ekki verið hærri frá því í lok febrúar fyrir rétt tæplega fyrir ári síðan, að sögn deildarinnar sem bætir við að um sé að ræða tiltölulega lítinn hluta af heildarskuldum heimilanna. Þau beri hins vegar almennt afar háa vexti eða allt frá 20 prósentum til 24 prósent. Vaxtastigið markist af háum skammtímavöxtum sem eru 14,25 prósent.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira