Fiskverð upp úr öllu valdi 20. mars 2007 12:05
Fiskverð fór upp úr öllu valdi á innlendum fiskmörkuðum í síðustu viku og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Verð á leigukvóta hefur líka náð sögulegum hæðum. Verð fyrir kílóið af nýveiddum fiski upp úr bát var að meðaltali tæpar 193 krónur fyrir allar tegundir og stærðir. Meðalverð á slægðum góðum þorski var 267 krónur, tæpar 200 krónur fyrir góða óslægða ýsu og 153 krónur fengust fyrir slægðan steinbít, svo þrjár söluhæstu tegundirnar séu nefndar. Hástökkvarinn í verði er hinsvegar þykkvalúran, en tæpar 440 krónur fengust fyrir kílóið af þeim eðal flatfiski. Góð veiði hefur verið hjá bátum víða við landið þegar gefið hefur á sjö undanfarnar vikur þannig að mjög hefur gengið á þorskkvóta þeirra. Það hefur valdið því að leiguverð fyrir þorsk hefur stór hækkað samfara minnkandi framboði. Marga marga er farið að bráðvanta þorskkvóta, vegna þorsks sem veiðist með á ýsu- eða ufsaveiðum. Kílóverð í leigu er nú komið upp í 190 krónur og stefnir hraðbyri í 200 krónur, sem er hærra en nokkru sinni fyrr. Allt er þetta mögulegt þar sem fiskverð fer enn hækkandi á heimsmarkaði.
Fréttir Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira