Fljótsdalshérað með 246 milljóna rekstrarafgang 22. mars 2007 09:44 Frá Egilsstöðum.
Fljótsdalshérað var rekið með 246 milljóna króna rekstrarafgangi í fyrra samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta stofnanir sveitarfélagsins, að því er fram kemur í uppgjör héraðsins. Afkoma A-hluta var jákvæð um 237 milljónir króna. Þetta er tæplega 202 milljónum meira en áætlanir sveitarfélagsins gerðu ráð fyrir. Í uppgjörinum kemur fram að fyrir fjármagnsliði hafi rekstrarniðurstaða A og B hluta verið jákvæð um 393 milljónir króna á 354 milljónum króna í A hluta. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 2.248 milljónum króna samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.993 milljónum króna. Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði námu 1.854 milljónum króna í samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af voru rekstrargjöld A hluta 1.639 milljónir króna, að því segir í uppgjörinu. Eigið fé sveitarfélagsins nam 1.312 milljónum króna í lok síðasta árs samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé A hluta 1.111 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall hækkaði úr 30 prósentum í 33 prósent og í A hluta úr 34 prósent í 38 prósentum á tímabilinu. Í byrjun desember í fyrra voru íbúar Fljótsdalshéraðs 4.644 talsins og fjölgaði þeim um 18,9 prósent á árinu. Skuldir og skuldbindingar á íbúa í A hluta sveitarsjóðs lækkuðu um 48 þúsund krónur á árinu og námu í árslok 386 þúsundum króna. Eignir á íbúa lækkuðu á sama tíma um 33 þúsund króna á íbúa og námu 626 þúsund krónum á mann.Uppgjör Fljótsdalshéraðs
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira