Spá lækkunum á bandarískum fasteignamarkaði 12. apríl 2007 09:43 Nýbygging í Miami í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Nokkrar líkur eru á að húsnæðisverð muni lækka á þessu ári í Bandaríkjunum. Verði það raunin er þetta í fyrsta sinn sem slíkt gerist að ráði í 38 ár, samkvæmt Landssamtökum verktaka í Bandaríkjunum. Helsta ástæðan fyrir lækkununum er samdráttur í fasteignakaupum og á fasteignalánamarkaði vestra. Fasteignaverð byrjaði að lækka nokkuð í Bandaríkjunum í fyrra, sér í lagi í Miðvesturríkjunum þar sem verðið fór niður um 2,0 prósent. Gert er ráð fyrir því að hækkana verði vart á þeim svæðum sem hafa lækkað mest fram til þessa. Lækkanirnar sem gert er ráð fyrir að verði á þessu ári eru almennari. Þær eru hins vegar ekki jafn miklar eða að meðaltali um 0,7 prósent á landsvísu, að sögn samtakanna. Walter Molony, talsmaður Landssamtaka verktaka í Bandaríkjunum, segir í samtali við bandaríska netmiðilinn IndyStar, að gangi spáin eftir muni þetta vera í fyrsta sinn síðan árið 1968 sem fasteignir lækki í verði svo nokkru nemi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Linkedin sektað um tugi milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira