
Viðskipti erlent

Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel
Joe Biden fráfarandi Bandaríkjaforseti hefur stöðvað kaup japanska fyrirtækisins Nippon Steel á bandaríska fyrirtækinu US Steel. Biden segir að innlent eignarhald á stálframleiðandanum sé gríðarlega mikilvægt þjóðaröryggismál.

Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar
Níu af hverjum tíu bílum sem keyptir voru nýir í Noregi í fyrra voru rafmagnsbílar. Markmið Norðmanna er að selja eingöngu rafmagnsbíla á árinu sem er að hefjast. Formaður sambands rafmagnsbílaeigenda segir Noreg verða fyrsta ríki heimsins til að ná því markmiði að nýskrá eingöngu rafmagnsbíla.

Sjónvarpskóngur allur
Bandaríski sjónvarpskóngurinn Charles Dolan, stofnandi Home Box Office, sem er betur þekkt undir skammstöfuninni HBO, og Cablevison, er látinn 98 ára að aldri.

Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins
Útlit er fyrir að bruni á jarðgasi stóraukist í Bandaríkjunum á næstu árum vegna óseðjandi þarfar gervigreindartækninnar fyrir raforku. Dæmi eru um að tæknifyrirtæki ætli sér að reisa gasorkuver sérstaklega fyrir gagnaver sín.

Bölvað basl á Bond
Innan veggja Amazon hefur lítið sem ekkert gengið að endurvekja James Bond, ofurnjósnarann breska og ímyndaða, frá því Daniel Craig hætti að leika hann og síðasta myndin kom út árið 2021.

Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS
Stjórnvöld í El Salvador segjast ætla að halda áfram að stækka varaforða sinna af rafmyntinni bitcoin og jafnvel spýta í þrátt fyrir lánasamning sem þau gerðu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Samningurinn fól í sér að þau ættu að draga úr áhættuskuldbindingum vegna bitcoin.

Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS
Stjórnvöld í El Salvador hafa fallist á að vinda ofan að umdeildri rafmyntarvæðingu landsins gegn því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti því 1,4 milljarða dollara lán. El Salvador varð fyrsta ríki heims til þess að gera rafmyntina bitcoin að gjaldmiðli sínum árið 2021.

TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ákveðið að taka fyrir mál bandaríska ríkisins gegn samfélagsmiðlinum TikTok, sem að öllu óbreyttu verður bannaður í landinu þann 19. janúar næstkomandi.

Ræða samruna Honda og Nissan
Forsvarsmenn bílafyrirtækjanna japönsku Honda og Nissan eiga í viðræðum um mögulegan samruna. Dregið hefur verulega úr hagnaði hjá Nissan og bæði fyrirtæki eiga í erfiðri baráttu við kínverska bílaframleiðendur sem eru að setja mark sitt á markaðinn.

Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps
Virði rafmyntarinnar Bitcoin náði nýjum hæðum í gærkvöldi. Það var eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, gaf í skyn að hann myndi koma á laggirnar rafmyntarforða Bandaríkjanna.

Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone
Innan veggja Apple er unnið að umfangsmiklum breytingum á helstu vörum fyrirtækisins. Til stendur að gefa út þynnri og ódýrari síma og tvær týpur af samanbrjótanlegum tækjum og það mögulega á næsta ári. Markmiðið er að auka sölu tækja, sem þykir hafa vaxið hægt á undanförnum árum.

Vesen á Messenger, Facebook og Instagram
Facebook, Instagram og fleiri miðlar Meta liggja sem stendur niðri víða um heim. Unnið er að viðgerð.

Verð á kaffi sögulega hátt
Verð á kaffi hefur tekið stökk og hefur aldrei verið hærra. Verðhækkanirnar má rekja til áætlana um minni uppskeru á kaffibaunum en undanfarin ár vegna mikilla þurrka og rigninga. Kaffiframleiðendur segjast aldrei hafa séð annað eins.

Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum
Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum.

Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk
Dómari í Delaware hefur ákveðið að Elon Musk fái ekki 56 milljarða dala í laun frá Tesla, þrátt fyrir samþykki stjórnar fyrirtækisins í sumar.

Danska ríkið kaupir Kastrup
Danska ríkið hyggst kaupa 59,4 prósenta hlut í Kastrup flugvelli af lífeyrissjóðnum ATP. Ríkið átti áður rúmlega fjörutíu prósenta hlut í flugvellinum og mun því eiga 98 prósenta hlut eftir kaupin.

Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla
Áströlsk börn yngri en sextán ára mega brátt ekki nota samfélagsmiðla eftir að umdeilt frumvarp ríkisstjórnar landsins varð að lögum í gær. Bannið nýtur almenns stuðnings en samfélagsmiðlafyrirtæki og nokkur samtök sem berjast fyrir réttindum barna eru á móti.

Vona að Musk takmarki tolla Trumps
Ráðamenn í Kína eru sagðir binda vonir við að umfangsmiklar fjárfestingar Elons Musk þar í landi muni nýtast sem vogarafl í því að fá hann til að tala máli þeirra við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Trump ætlar að skipa nokkra menn í ríkisstjórn sína sem hafa verið harðorðir í garð Kína um árabil.

Vilja þvinga Google til að selja Chrome
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur farið fram á að Google verði gert að selja reksturinn varðandi Chrome vafrann. Fyrr á þessu ári komst dómari að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi brotið margvísleg samkeppnislög og misnotað markaðsráðandi stöðu þess.

Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör
Algjör skortur á vinsælli grískri sósu á Bretlandseyjum er orðið að umfjöllunarefni stærstu fjölmiðla þar í landi. Skortinn er talinn mega rekja til verkfalls starfsfólks í einni af verksmiðjum Bakkavarar í bænum Spalding.

Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla
Teymi Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur lagt línurnar að því að binda enda á 7.500 dala skattaívilnun fyrir fólk sem kaupir rafmagnsbíla í Bandaríkjunum. Er það sagt vera liður í umfangsmeiri breytingum á skattkerfi Bandaríkjanna.

Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum
Danska konungshöllin hefur gefið út að frá og með árinu 2030 megi dönsk fyrirtæki ekki lengur merkja vörur sínar með kórónu með skilaboðum um að framleiðandinn sé „konunglegur birgðasali“, eða „Kongelig Hofleverandør“.

Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki
Evrópskur dómstóll hafnaði umsókn úkraínska landamæraeftirlitsins um að skrá svívirðingar um rússneskt herskip sem vörumerki í dag. Svívirðingarnar hafa orðið að nokkurs konar þjóðarslagorði í Úkraínu í stríðinu gegn Rússum.

Linkedin sektað um tugi milljarða
Írska persónuverndarstofnunin hefur sektað samskiptamiðilinn Linkedin um 310 milljónir evra, sem eru um 46 milljarðar króna, fyrir brot á persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins, GDPR.

Samkeppni eykst í Grænlandsflugi
Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi.

Sekta Google um meira en allan pening heimsins
Yfirvöld í Rússlandi hafa sektað bandaríska fyrirtækið Google um tvær sextilljónir rúbla, fyrir að meina ríkisreknum fjölmiðlum landsins aðgang að myndbandaveitunni Youtube, sem Google á. Það er mun meira af peningum en magn allra peninga sem til eru í heiminum.

Adidas og Ye sættast
Þýski íþróttavoruframleiðandinn Adidas og rapparinn Ye, áður Kanye West, hafa náð sáttum eftir að hafa staðið í málaferlum síðan Adidas sleit samstarfi við rapparann árið 2022.

Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa
Samstarfsaðili knattspyrnurisanna Barcelona og PSG býður upp á veðmál um úrslit þúsunda áhugamannaleikja sem hann streymir frá og þar sem keppendur eru allt niður í fjórtán ára gamlir. Starfsemi fyrirtækisins er ólögleg víða en hægt er að veðja á síðunni á Íslandi, meðal annars á úrslit íslenskra leikja.

Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans?
Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45.

United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk
Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli New York og Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, næsta sumar. Flugið hefst 14. júní og stendur yfir sumartímann til 24. september 2025.