Veitingamenn eiga eftir að skila neytendum verðlækkun 16. apríl 2007 14:07 MYND/AP
Alþýðusamband Íslands segir ljóst að veitingamenn eigi enn eftir að skila neytendum þeirri verðlækkun sem til átti að koma vegna lækkunar á virðisaukaskatti. Í frétt á heimasíðu ASÍ er fjallað um breytingar á vísitölu neysluverðs en verðbólga mælist nú 5,3 prósent samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Bent er á að verð á mat- og drykkjarvörum hafi lækkað um nærri prósentustig mánaða og að ætla megi að þar sé að skila sér hluti þeirra lækkana sem varð á vörugjöldum þann 1. mars. Gert hafi verið ráð fyrir að afnám vörugjalda skilaði 1,3 prósenta verðlækkun á mat- og drykkjarvörum en ætla megi að sú lækkun geti tekið 2-3 mánuði að skila sér að fullu. Þá er bent á í frétt ASÍ að breytingar á virðisaukaskattinum þann 1. mars hafi átt að ná til fleiri liða vísitölu neysluverðs, þar á meðal lækkun á virðisaukaskatti á veitingahúsum. Áætlað hafi verið að sú breyting hefði tæplega níu prósenta áhrif til lækkunar á veitingarlið vísitölunnar en við síðustu mælingu vísitölunnar í mars hafi verð á veitingahúsum einungis lækkað um 3,2 prósent frá því í febrúar. Vonir hafi staðið til þess að veitingamenn myndu lækka hjá sér verð og skila lækkun á virðisaukaskattinum til neytenda en það sé hins vegar ekki raunin því veitingarliður vísitölunnar nú sé nánast óbreyttur frá því í marsmánauði.
Efnahagsmál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Sjá meira