Dómur yfir Jónasi sá þyngsti sinnar tegundar 10. maí 2007 19:16
Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag Jónas Garðarsson, fyrrverandi formann Sjómannafélags Reykjavíkur, í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn er sá þyngsti sinnar tegundar. Jónas var ekki viðstaddur dómsuppkvaðningu í dag en ættingjar þeirra sem létust í slysinu fjölmenntu hins vegar í réttarsal. Hæstiréttur Íslands staðfesti þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur en þetta er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp hér á landi fyrir manndráp af gáleysi. Jónas var dæmdur fyrir að hafa verið valdur að dauða tveggja manna eftir að skemmtibátur hans, Harpan, steytti á Skarfaskeri á Faxaflóa haustið 2005. Jónas hélt því fram við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hann hefði ekki verið við stýrið þegar slysið varð heldur Matthildur Harðardóttir. Matthildur og sambýlismaður hennar, Friðrik Ásgeir Hermannsson, létust í slysinu en Jónas, kona hans og sonur komust lífs af. Dómurinn tók ekki mark á vitnisburði Jónasar og taldi hann hafa gert sig sekan um að reyna að koma ábyrgð yfir á þá sem létust í sjóslysinu. Dómurinn taldi einnig að Matthildur hefði lifað af slysið hefði Jónas brugðist við með eðlilegum hætti. En á meðan hún var neðan þylja að huga að sambýlismanni sínum, stýrði Jónast bátnum af skerinu frá landi. Eftir að dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi sagði Jónas sig frá öllum trúnaðarstörfum sem hann hefur gegnt fyrir Sjómannafélag Reykjavíkur, Sjómannasamband Íslands og Norræna flutningamannasambandið. Einn dómaranna í málinu skilað sératkvæði og vildi að Jónas sæti í tvö og hálft ár í fangelsi í stað þriggja. Jónas var jafnframt dæmdur til að greiða aðstandendum þeirra sem létust í slysinu 9,6 milljónir króna í bætur.
Sjóslys á Skarfaskeri Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira