Orkuverð til álversins opinbert 7. júní 2007 12:08
Samningur Orkuveitu Reykjavíkur við Norðurál vegna álvers í Helguvík er með hagstæðari samningum sem veitan hefur gert til álfyrirtækis, segir Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri Orkuveitunnar staðfestir að verðið sé nærri tveimur komma einni krónu á kílóvattstund. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, staðfesti í samtali við fréttastofu að þessi tala, 2,1 króna, sem birtist í Fréttablaðinu í dag, sé ekki fjarri lagi og gæti einhvern tímann á tímabilinu verið rétt en orkuverðið er bæði háð dollar og álverði. Samningurinn við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík er til 25 ára og á þeim tíma áætlar Orkuveitan, segir Guðmundur, að fá um 40 milljarða fyrir raforkuna til álversins. Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitunnar, vildi ekki koma í viðtal en sagði að samningurinn væri Orkuveitunni mjög hagstæður. Orkuverð hafi farið hækkandi með hverjum nýjum samningi sem gerður hafi verið og þessi tiltekni samningur væri með þeim hagstæðari sem Orkuveitan hefur gert við álfyrirtæki en hún selur til álveranna í Straumsvík og á Grundartanga. Forstjóri Orkuveitunnar segir að heita vatnið til borgarbúa myndi hækka ef ekki væri fyrir þennan stóra raforkusamning. Dagur B. Eggertsson er ekki sammála því.
Fréttir Innlent Mest lesið Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Innlent Dómur Sigmars fyrir að nauðga stúlku á göngustíg stendur Innlent Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst Innlent Kröfu foreldranna vísað frá Innlent Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði Innlent Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Innlent Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“ Innlent Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Innlent „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Daði óskar eftir tillögum frá almenningi um blessað brennivínið Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu Fyrsti fulltrúi Íslands á minningarathöfninni í Auschwitz Refur með fuglainflúensu Kröfu foreldranna vísað frá Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Framkvæmdir stöðvaðar að hluta Kennarar óttist vanefndir „Búumst við hinu versta en vonum það besta“ Kennarar melta tillögu ríkissáttasemjara Minningargreinamálið fer ekki fyrir Hæstarétt Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu? Lítið sem ekkert flug framundan Vilhjálmur stýrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis Gagnrýna að einkarekstri leikskóla hafi verið haldið frá bæjarstjórn Þorsteinn Skúli tekur formannsslaginn Taka ákvörðun í mars um hvort flokksþingi verði flýtt Sjá meira