Bakkavör hefur fest kaup á 51 prósenta hlut í tékkneska matvælafyrirtækinu Heli Food Fresh. Í kaupsamningnum felst jafnframt skuldbinding um að kaupa eftirstandandi hluti í fyrirtækinu í apríl árið 2010.
Heli Food Fresh framleiðir tilbúna rétti, súpur og sósur fyrir austur-evrópskan markað. Velta fyrirtækisins nemur tæplega þrjú hundruð milljónum íslenskra króna á ári og hjá því starfa sjötiu og sex manns.
Kaupverð er trúnaðarmál að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Bakkavör. Þó er tekið fram að kaupin muni hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins.