Uppsveiflu Atlantic Petroleum lokið í bili 12. september 2007 11:09 Wilhelm Pettersen, forstjóri færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum. Gengi félagsins rauk upp í vikunni en hefur lækkað mest í dag.
Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í verði í Kauphöllinni í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,49 prósent. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur lækkað mest í dag, eða um 2,7 prósent. Félagið hefur verið á viðstöðulausri uppleið í Kauphöllinni vikunni og hækkað um tæp 129 prósent frá áramótum. Einungis gengi bréfa í Eimskipafélaginu og Atorku hafa hækkað í dag, þar af Eimskipafélagið mest, um 0,25 prósent. Önnur félög í Kauphöllinni hafa ýmist lækkað eða staðið í stað. Lækkanatakturinn var sleginn á hlutabréfamörkuðum í Japan í morgun í kjölfar þess að Shinzo Abe, forsætisráðherra landsins, sagði óvænt af sér. Óvissa gætir um hver muni taka við af honum. Nikkei-vísitalan lækkaði um 0,5 prósent í kjölfar afsagnarinnar.Greinendur telja þó að brotthvarf Abes úr stóli forsætisráðherra geti haft jákvæðar afleiðingar fyrir verðþróun á hlutabréfamörkuðum, að sögn breska ríkisútvarpsins. Nokkrar sveiflur hafa verið á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag. Þannig hefur FTSE-vísitalan lækkað um 0,3 prósent og hin þýska Dax-vísitala lækkað um 0,26 prósent. Á móti hefur Cac40-vísitalan í Frakklandi hækkað um 0,21 prósent.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira