Súrrealískur sigur 18. mars 2008 07:00 Sigursveit Músiktilrauna 2008 Borgþór, Arnór, Þórarinn og Hrafnkell eru Agent Fresco. Fréttablaðið/Arnþór
Hljómsveitin Agent Fresco sigraði Músiktilraunir í ár. Sigurinn kom liðsmönnum sveitarinnar mikið á óvart. Sveitin spilar pólirythmískt rokk með nokkrum áhrifum frá djassi. Sveitin þykir gríðarlega þétt og fengu hljóðfæraleikarar hennar allir verðlaun á sínu sviði. Þórarinn Guðnason þótti besti gítarleikarinn, Borgþór Jónsson besti bassaleikarinn og Hrafnkell Örn Guðjónsson besti trommarinn. Þeir eru allir 18 ára og bæði í MH og FÍH. Fjórði meðlimurinn er Arnór Dan Arnarson sem syngur. „Sigurinn kom okkur rosalega á óvart og við erum nú bara enn þá hlæjandi þegar við hittumst. Þetta var svo súrrealískt,“ segir Arnór. „Þetta er allt búið að gerast svo fljótt. Strákarnir stofnuðu bandið fyrir mánuði. Ég fékk tölvupóst frá þeim fyrir tveim vikum þar sem þeir báðu mig um að syngja. Þeir höfðu aldrei heyrt í mér en vissu að ég fíla svipaða tónlist og þeir – hljómsveitir eins og At the Drive-in og The Dillinger Escape Plan. Ég er í klassísku deildinni í FÍH og það getur verið hættulegt að biðja klassíska söngvara um að syngja rokk en það ætti að sleppa í mínu tilfelli.“ Sigurinn verður til þess að nú ætla hljómsveitarmeðlimir að taka bandið alvarlega. „Við hittumst í gær og ákváðum að leggja okkur hundrað prósent í þetta. Við vorum ekki einu sinni með Myspace-síðu svo að koma slíkri síðu í loftið er eitt af því fyrsta sem við gerum svo fólk geti nú heyrt í okkur. Við ætlum að semja í páskafríinu og stefnum á plötu. En fyrst og fremst að skemmta okkur.“ Arnór, sem er elstur í bandinu, 22 ára, hefur búið í Danmörku í 17 ár en flutti hingað fyrir rúmu ári. Hann var á leið í danskan leiklistarskóla í haust. „Ég fresta því og læt bandið ganga fyrir. Við verðum að spila á Airwaves og svona.“ Í öðru sæti urðu rappararnir Óskar Axel Óskarsson og Karen Pálsdóttir, sem fengu einnig viðurkenningu fyrir textagerð á íslensku. Í þriðja sæti varð metalcore-bandið Endless Dark frá Ólafsvík en The Nellies frá Mosfellsbæ var kjörin „hljómsveit fólksins“. gunnarh@frettabladid.is
Músíktilraunir Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira