Hljóðbækur sem lifna við 15. júlí 2008 06:00 Leikstjórn hálfgert fyrirtæki Jón Gunnar Þórðarson ræðst í rekstur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri stendur í fyrirtækjarekstri í kringum hljóðbækurnar Íslenskar þjóðsögur, sem nýlega litu dagsins ljós. Fyrirtækið heitir Heyr heyr og sér um hljóðsetningar. „Okkur fannst þetta vanta. Það er félag sem einbeitir sér algjörlega að hljóðmynd. Það eru til hljóðbækur sem eru í sjálfu sér góðar en þar er helst beinn upplestur. Svo eru til geisladiskar með tónlist. Við vildum láta þetta haldast í hendur og búa til bíómynd á geisladiskaformi, nánast,“ segir Jón Gunnar Þórðarson um fyrirtækið Heyr heyr. Jón Gunnar hefur aldrei rekið fyrirtæki áður. „Það er nú með leikstjórn að það er hálfgert fyrirtæki. Maður er kominn með reynslu af því að basla í leikhúsi þar sem maður þarf að búa til vinnuna sjálfur. Ég þurfti að gera það með Silfurtunglið og lærði af því. Annars er það nýtt fyrir mér að fara í allar þessar tölur og þess háttar en það er bara spennandi.“ Er Jón Gunnar hræddur við bókhaldið? „Nei. Þess vegna erum við með viðskiptafræðing í fyrirtækinu. Núna eru fjórir starfsmenn. Ég er leikstjórinn, Sindri Þórarinsson er hljóðhönnuður og Egill Antonsson er tónlistarmaður. Svo er Andri Franklin Þórarinsson viðkiptafræðingur og bókhaldari. Þetta er allt í öruggum höndum.“ Diskarnir, sem eru tveir, eru byggðir á Þjóðsögum við þjóðveginn eftir Jón R. Hjálmarsson. Jón Gunnar segir verkefnið hafa orðið til í samræðum um hvað væri hægt að gera. „Það er alltaf gaman þegar maður finnur eitthvað og hugsar, er þetta ekki til? – og svo er það ekki til. Þjóðsögur eru eitthvað sem allir eiga að geta tengt við og hljóðsetningin er nýjung.“ Fjöldi leikara kemur að lestri, en aðalsögumaður er Sigursteinn Másson, sem fólk þekkir úr Sönnum íslenskum sakamálum. Jón Gunnar segir fleiri verkefni í vinnslu hjá Heyr heyr, fyrir börn sem fullorðna. Þeirra að auki eru nokkur fram undan hjá Jóni sjálfum. Leikfélag hans, Silfurtunglið, sýnir Fool for Love á Akureyri, þar sem hann leikstýrir einnig nýju leikriti eftir Bjarna Jónsson. „Svo eru einhver fleiri plön með Silfurtunglið en það er enn á skemmtilegu stigi. Það verða einhverjir af sömu leikurunum, bara eftir því hvaða verk verður valið. Svo er áframhaldandi samstarf við KK og eitthvað fleira í bígerð.“ kolbruns@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira