Tónlist

Stóru B-in tvö sameinast

Ekki í hagræðingarskyni Baggalútur og Buff virkja kraft heildarinnar.
Fréttablaðið/arnþór
Ekki í hagræðingarskyni Baggalútur og Buff virkja kraft heildarinnar. Fréttablaðið/arnþór

Það verður mikið um dýrðir þegar Baggalútur og Buff leika saman á dansleik á Nasa um næstu helgi. Sveitirnar hafa gert ábreiður af hvort annars lögum.

Poppsveitirnar Buff og Baggalútur ætla að skella saman í stórdansleik á laugardaginn næstkomandi á Nasa. Er það kreppan, blessuð kreppan, sem lætur popparana þjappa sér svona saman? „Kreppan? Nei, það þarf nú enga kreppu til að menn vilji gera sér glaðan dag," segir Baggalúturinn Guðmundur Pálsson. „Við erum ekkert að sameinast í hagræðingarskyni. Frekar er þetta spurningin um að virkja þann rosalega kraft sem býr í heildinni."

Hugmyndin kviknaði baksviðs á samstöðutónleikum Bubba Morthens þar sem báðar sveitirnar spiluðu. „Það þótti borðleggjandi að B-in tvö sameinuðust á einum flennitónleikum," segir Guðmundur. „Það hefur nefnilega alltaf verið náið og innilegt samband á milli þessara sveita og það samband fær að springa út á Nasa. Það má segja að þetta séu systrasveitir."

Til kynningar og hátíðarbrigða hafa böndin gert ábreiður af hvort annars lögum. Baggalútur tekur Bufflagið „Í dag", sem er orðið að hressilegu diskóskotnu polka-schlager-lagi, og Buffið rennir sér í „Kósíkvöld í kvöld". „Þeir börðu það með Buff-hamrinum og útkoman er mögnuð og mergjuð með röddunum út í hið óendanlega," segir Guðmundur. Hann segir sveitirnar spila saman og hvort í sínu lagi á Nasa. Baggalútur hefur fleira fyrir stafni þessa dagana því nýtt aðventulag þeirra, „Það koma vonandi jól", byrjar að hljóma í vikunni. Fyrstu aðventutónleikar sveitarinnar fara svo fram í Salnum í Kópavogi á fimmtudags­kvöldið. drgunni@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×