Tónlist

Garðar heldur tónleika

Garðar Cortes
Mynd fréttablaðið/
Garðar Cortes Mynd fréttablaðið/
Garðar Cortes, hinn dáði tenórsöngvari, mun halda tvenna hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar sem hann flytur helstu jólaperlur tónbókmenntanna með píanóleikaranum Robert Sund. Tónleikarnir verða mánudaginn 15. og þriðjudaginn 16. desember og hefjast kl. 12.15.

Á síðari árum hefur það orðið fátíðara að Garðar hafi sungið opinberlega og því mikill happafengur að fá að njóta hæfileika söngvarans nú á aðventunni. Garðar og sænski píanóleikarinn Robert Sund hafa starfað reglulega saman frá árinu 1980. Á tónleikunum munu Garðar og Robert einnig flytja lög af nýjum geisladisk sem er að koma út um þessar mundir og seldur verður á Kjarvalsstöðum. Þeir halda síðan tónleikaför sinni áfram til Uppsala í Svíþjóð.

Garðar Cortes þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann hefur á síðari árum beint kröftum sínum æ meira að hljómsveitarstjórn. Garðar er skólastjóri Söngskólans í Reykjavík og stjórnandi Óperukórsins. Robert Sund hefur um langt skeið kennt við Tónlistarháskólann í Stokkhólmi, leikið á píanó, útsett, samið og stjórnað en leiðir tvímenninganna lágu fyrst saman á norrænu kóramóti þar sem þeir voru báðir stjórnendur.

Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 og standa yfir í um 40 mínútur. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt er fyrir eldri borgara og námsmenn. Fyrir og eftir tónleika býður veitingasalan á Kjarvalsstöðum upp á úrval rétta á hagkvæmu verði.

- pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×