Bruno Senna prófar Honda 4. nóvember 2008 10:28 Nelsson Piquet og Bruno Senna eru báðir frá Brasilíu og Bruno gæti orðið Formúlu 1 ökumaður á næsta ári ef æfingar með Honda ganga vel. Mynd: Getty Images
Frændi hins fræga Ayrton Senna, Bruno Senna mun prófa Honda Formúlu 1 bíl á æfingum um miðjan nóvember. Hann á möguleika á sæti hjá liðinu 2009. Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Honda segist hæstánægður að Senna sé viljugur til verksins. Senna hefur staðið sig vel í GP 2 mótaröðinni. "Við munum prófa Senna af festu og hann verður í höfðumstöðvum okkar að undirbúa sig af kostgæfni í ökuhermi okkar", sagði Brawn. Bruno er spenntur að fá tækifæri og ef hann stendur sig vel, þá er líklegt að hann taki sæti Rubens Barrichello. "Ég er vitanlega mjög spenntur að fá að prófa Formúlu 1 bíl í fyrsta skipti. Þetta hefur lengi verið draumur minn, þó ég hafi bara keppt í fjögur ár í kappakstri. Ég vonast til að sýna Honda að ég geti gert góða hluti", sagði Bruno. Þegar Bruno var ungur að árum, þá sagði frændi hans Ayrton að hann væri betri en hann hefði verið ungur. En eftir að Ayrton lést, þá bannaði mamma Bruno honum að keppa í kappakstri. Hann varð því að bíða þar til að hann varð lögráða til að geta keppt á ný.
Mest lesið Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Dagskráin í dag: Doc Zone, frábærir leikir í enska og Bónus-deild kvenna Sport Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Körfubolti Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti Blikar áfram með fullt hús stiga Körfubolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira