Sport

Á­fall fyrir lands­liðið: „Hef verið ælandi í ní­tján tíma“

Aron Guðmundsson skrifar
Þórdís Ólöf hefur lokið keppni
Þórdís Ólöf hefur lokið keppni Sportmyndir.is/Guðmundur Freyr Jónsson

Íslenska landsliðið í Bakgarðshlaupum varð fyrir áfalli við upphaf 32. hringjar þegar að einn sterkasti hlaupari liðsins, Þórdís Ólöf Jónsdóttir, hætti keppni eftir að hafa barist við mikla magaverki í yfir nítján klukkustundir.

Íslenska landsliðið er nú komið hálfa leið í átt að ríkjandi Íslandsmeti í greininni og hefur hingað til hlaupið í afar krefjandi aðstæðum, mikilli rigningu og roki. 

Hildur Guðný hætti við upphaf 32. hringjar og slíkt hið sama gerði Þórdís Ólöf Jónsdóttir eftir að hafa reynt að halda áfram. 

Blóðtaka fyrir íslenska liðið, Hildur Guðný að ná sínum besta árangri en Þórdís töluvert frá sínu besta en góð og gild ástæða fyrir því.

Klippa: Hildur Guðný og Þórdís hætta

„Ég er langt frá mínu besta en hef verið ælandi í nítján tíma. Líkaminn er bara að segja stopp,“ sagði Þórdís í viðtali við Garp og Tinnu eftir að hafa hætt keppni. 

Hún reyndi bókstaflega allt til þess að reyna draga úr magaverkjum en játaði sig nú sigraða eftir 32 hringi en persónulegt met hennar er 44 hringir.

Beina útsendingu sem og beina textalýsingu frá landsliðskeppninni í Bakgarðshlaupum má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×