Tónlist

Jóhann fær góða dóma

Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia.
Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia.

Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia.

„Platan hljómar kunnuglega fyrir aðdáendur Jóhannssonar. Hún er uppfull af fallegum strengjum sem eru studdir af flottri raftónlist," segir gagnrýnandinn og bætir við að Fordlândia sé dramatískasta verk Jóhanns til þessa. Hann segir að platan sé mjög góð og vel samin en einum of fáguð. Jóhann hefur jafnan fengið góða dóma á Pitchforkmedia fyrir plötur sínar og er þessi engin undantekning. - fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×