Tónlist

U2-plata í febrúar

Rokkararnir í U2 gefa út sína tólftu hljóðversplötu eftir rúma tvo mánuði.
Rokkararnir í U2 gefa út sína tólftu hljóðversplötu eftir rúma tvo mánuði.

No Line on the Horizon, tólfta hljóðversplata U2, kemur í búðir 23. febrúar á næsta ári. Tónlistarverslunin HMV greindi frá þessu. Mikil eftirvænting er eftir plötunni, sem fylgir eftir How to Dismantle an Atomic Bomb sem kom út fyrir fjórum árum við miklar vinsældir.

Harry Crosbie, eigandi O2-tónleikahallarinnar í London og góðvinur U2, segir plötuna þá bestu í sögu sveitarinnar. „Ég held að þetta sé það besta sem þeir hafa gert og ég er ekki bara að segja þetta af því að þeir eru vinir mínir," sagði hann. „Þetta er virkilega skapandi gripur og mér finnst útkoman minna mig á Bítlana þegar þeir voru upp á sitt besta. Þetta er ótrúlega góð plata."

Á meðal fleiri platna sem HMV hefur tilkynnt að komi út á næsta ári eru nýjasta plata Depeche Mode sem kemur út 20. apríl og plata Courtney Love, Nobody"s Daughter, sem kemur út 9. febrúar. Einnig eru væntanlegar plötur frá Black Eyed Peas, Dr. Dre, Blur og Aerosmith.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×