Tónlist

Plötur ársins 2008 tilkynntar

Fleet foxes
Fleet foxes
Eins og jafnan á þessum tíma árs keppast nú blöð, tímarit og netmiðlar við að birta lista sína yfir bestu plötur ársins. Niðurstöðurnar eru jafn ólíkar og miðlarnir eru margir, en sé litið til heildarinnar skara sumar plötur fram úr.

1. Fleet Foxes - Fleet Foxes
Bon iver
Gæði kvintettsins Fleet Foxes frá Seattle spurðust fyrst út á netinu. Sveitin fékk samning við gamla gruggmerkið Sub Pop í byrjun árs og frumraunin sem kom út í júní þykir gríðarlega vel heppnuð. Miðað við ungan aldur meðlimanna þykir bandið gríðarlega þroskað og fullnægjandi. Tónlistin er róleg og þéttofin og er gagnrýnendum tíðrætt um sterk áhrif frá Beach Boys og Crosby, Stills, Nash & Young.

2. Bon Iver - For Emma, Forever ago
tv on the radio
Bon Iver („Góður vetur" á frönsku) er hljómsveitarnafn Justins Vernons. Hann samdi lögin á plötunni um hávetur í einangruðum sumarbústað í Wisconsin þar sem hann dvaldi sér til heilsubótar. Útkoman þykir einstaklega góð og persónuleg.

3. TV on the Radio - Dear Science
lil wayne
Þriðja stóra plata TV on the Radio frá New York þykir bæði besta og aðgengilegasta verk sveitarinnar. Sveitin þykir brúa snyrtilega bil tilraunamennsku og popptónlistar.

4. Lil‘ Wayne - Tha Carter III
Kings of leon
Sjötta plata rapparans Lil' Wayne gerði það einstaklega gott á árinu, uppskar mikið lof og fádæma vinsældir miðað við rappplötu. Platan er mest selda plata ársins í Bandaríkjunum og fékk flestar Grammy tilnefningar, alls átta.

5. Kings of Leon - Only By The NightFjórða plata þessa bræðrarokkbands frá Tennessee kom út í september og hefur verið mjög vinsæl um allan heim. Þetta er sneisafull plata af rokkslögurum, en „Sex on Fire" og „Use Somebody" hafa þegar slegið í gegn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×