Alltaf er fengur að bókum á íslensku um viðskipti og athafnafólk. Warren Buffet-aðferðin ætti því að vera kærkomin lesning, ekki síst fyrir íslenska fjárfesta sem brennt hafa sig illa á hlutabréfaviðskiptum síðustu misserin. Það er Mikael Torfason, rithöfundur og fv. ritstjóri, sem gefur bókina út, en Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, ritar inngang og formálinn er eftir Má Wolfgang Mixa, sérfræðing hjá Icebank. Buffet er, eins og kunnugt er, ríkasti maður heims, gegnum fjárfestingarfélagið Berkshire Hathaway og í bókinni er kafað ofan í fjárfestingarspeki hans, kenndar aðferðir til að meta fyrirtæki og fjárfestingarkosti og beitt til þess auðskildum aðferðum, en Buffet hefur sjálfur ávallt sagt að hver sem er geti beitt þeim aðferðum sem hann hefur sjálfur beitt með góðum árangri gegnum tíðina …
Ekki beint íslenska aðferðin
Inngangur Gylfa Magnússonar að bókinni er hnýsilegur, ekki síst þessi setning: „Íslenskir fjárfestar virðast undanfarin ár flestir hafa hugsað á allt öðrum nótum en Buffet. Áhersla margra íslenskra fjárfesta á að reyna að ná skjótfengnum gróða með því að veðja á verðhækkun á mörkuðum og magna uppsveifluna með því að nota lítið eigið fé en mikið lánsfé er eins fjarri hugmyndum Warrens Buffets og hugsast getur.“ Kannski hér sé komin ein skýringin á því að Buffet nýtur stöðugrar velgengni, ár eftir ár, en íslenskir fjárfestar berjast nú við timburmenn eftir veisluhöld síðustu ára og sjá sumir hverjir ekki til sólar …
