Tónlist

Hafdís Huld í breyttri útgáfu

Simon hefur endurhljóðblandað lagið Tomoko með söngkonunni Hafdísi Huld.
Simon hefur endurhljóðblandað lagið Tomoko með söngkonunni Hafdísi Huld.

Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs.

„Þetta var skemmtilegt verkefni og það mætti segja að ég sé aðdáandi hennar," segir Simon, sem rekur útgáfufyrirtækið Airport Route sem er í Reykjanesbæ.

Hann hefur áður endurhljóðblandað fyrir íslenska söngkonu því hann, ásamt félaga sínum Pete Lunn, endurhljóðblönduðu lög Birgittu Haukdal, Ein og Örmagna, fyrr á árinu. „Ég talaði við Hafdísi og hennar fólk og sagði þeim frá mínum hugmyndum. Eftir það buðu þau mér að setja saman góðan pakka," segir Simon.

Þrjár útgáfur af Tomoko voru gerðar og sá Simon um tvær en Bandaríkjamaðurinn Royal Sapien útbjó eina. „Ég ber mikla virðingu fyrir honum en hann hefur sjálfur endurhljóðblandað og gefið út efni með hinni íslensku Funk Harmony Park. Hann hefur einnig gefið út lagið mitt On Fire hjá útgáfufyrirtæki sínu, Olaris Records," segir Simon, sem gaf á síðasta ári út sólóplötuna Left Right of Centre.

Annað lag Hafdísar Huldar, Stop, kemur einnig út á mánudaginn og verður það fáanlegt á iTunes.

Hafdís ætlar í janúar að hefja upptökur á nýrri plötu sem mun fylgja eftir hinni vel heppnuðu Dirty Paper Cup sem kom út fyrir tveimur árum. - fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×