Tónlist

Trúbador opnar viðburðasíðu

Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben opnar heimasíðuna Garg.is í dag ásamt Atla Hólmgrímssyni.
Tónlistarmaðurinn Hlynur Ben opnar heimasíðuna Garg.is í dag ásamt Atla Hólmgrímssyni.

Ný íslensk heimasíða, Garg.is, verður opnuð í dag. Síðunni er ætlað að veita upplýsingar um tónlistarviðburði á höfuðborgarsvæðinu og eru stofnendur trúbadorinn Hlynur Benediktsson og Atli Hólmgrímsson.

„Okkur fannst vanta síðu sem væri ekki full af ónýtum fróðleik um hitt og þetta heldur sýndi meira hvað er að gerast hvar og hvernig maður kemst í það," segir Hlynur. „Þarna verður allt á einum stað, ósköp einfalt og gott."

Á síðunni verður hægt að smella annaðhvort á nafn skemmtistaðar eða skemmtikrafts og opnast þá gluggi með frekari upplýsingum eins og heimasíðu viðkomandi og síma. „Þarna verður líka gagnagrunnur sem býður upp á meiri möguleika seinna og þá verður hægt að bjóða upp á alls konar þjónustu en við byrjum smátt og sjáum hvernig fer."

Hlynur, sem gaf út sína fyrstu sólóplötu fyrr á árinu, ætlar í pásu sem trúbador því hann hefur stofnað ballsveitina Mono. Hún mun einmitt halda ball á Tunglinu á laugardag í tilefni opnunar Garg.is. Erna Hrönn Ólafsdóttir, sem áður var í Bermuda, ætlar að syngja með sveitinni þetta eina kvöld. „Ég var orðinn svo þreyttur á að sitja einn með kassagítarinn," segir Hlynur, um hina nýju Mono, sem ætlar að láta til sín taka á ballmarkaðinum í framtíðinni. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×