Atlantic Airways á uppleið í Kauphöllinni 21. febrúar 2008 16:46 Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways, ásamt Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallarinnar, þegar félagið var skráð á markað hér síðasta haust. Mynd/Vilhelm
Færeyingarnir hjá flugfélaginu Atlantic Airways flugu upp um sex prósent prósent við upphaf viðskipta í Kauphöll Íslands í dag en afkomutölur félagsins fyrir síðasta ár voru birtar í gær. Félagið skilaði hagnaði upp á jafnvirði 312 milljóna íslenskra króna í fyrra, sem er besta ár í sögu Atlantic Airways. Hækkunin gekk til baka að nokkru leyti yfir daginn og endaði í 4,8 prósenta hækkun. Álfélagið Century Aluminum hækkaði sömuleiðis um rúmt prósentustig en önnur félög minna, þar af Icelandair minnst, eða um 0,39 prósent. Á sama tíma féll gengi bréfa í Bakkavör um 2,87 prósent. Gengi bréfa í Glitni lækkaði um 1,65 prósent, SPRON um 1,38 prósent, Eimskipafélagsins um 0,85 prósent og Kaupþing um 0,81 prósent. Gengi Straums, Landsbankans, Marel, Atorku, FL Group, Eik banka og Existu lækkaði sömuleiðis, minnst í Existu. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,95 prósent og stendur hún í 5.034 stigum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira