Lánshæfishofur Straums stöðugar 3. apríl 2008 10:11 William Fall, forstjóri Straums, ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni, stjórnarformaður bankans.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch staðfesti í gær lánshæfiseinkunnir Staums. Lánshæfiseinkunn fjárfestingarbankans er BBB- og langtímahorfur stöðugar. Horfur Straums eru þær einu af íslensku bönkunum sem eru stöðugar, líkt og greiningardeild Glitnis bendir á. Greiningardeildin bendir á það í Morgunkorni sínu í dag, að Fitch hafi breytt horfum stærstu viðskiptabankanna þriggja, Kaupþings, Landsbankans og Glitnis úr stöðugum í neikvæðar nú fyrr í vikunni. Í kjölfarið var ríkissjóður einnig settur á neikvæðar horfur. „Í rökstuðningi Fitch segir að staðfesting á lánshæfi Straums endurskoði þá skoðun að þrátt fyrir umrót á fjármagnsmörkuðum og neikvæð viðhorf markaðsaðila gagnvart íslenskum aðilum þá geri sterk lausafjárstaða Straums og viðráðanleg endurfjármögnunarþörf það að verkum að Straumur hafi sterkari brynju gagnvart neikvæðri umræðu og erfiðum markaðsaðstæðum heldur en stærri bankarnir sem hafa verið meira í umræðunni," segir í Morgunkorninu og bent á að Fitch telji straum síður viðkvæman fyrir þeim blikum sem séu á lofti vegna aukinnar hættu á harðri lendingu íslenska hagkerfisins Bankinn er hins vegar ekki algjörlega ónæmur fyrir ytra umhverfi, segir Glitnir og hefur eftir Fitch að að vaxta- og þóknanatekjur Straums verði að einhverju leyti fyrir neikvæðum áhrifum á þessu ári. Megi búast við að stormurinn á alþjóðlegum fjármálamarkaði hafi einhver áhrif á afkomu og starfsemi bankans á árinu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira