Handbolti

HK vann meistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdimar Þórsson og Sverre Jakobsson í leik með HK.
Valdimar Þórsson og Sverre Jakobsson í leik með HK.
HK vann í kvöld sigur á Íslandsmeisturum Haukum í N1-deild karla, 25-23.

HK reyndist sterkara undir lok leiksins eftir að jafnræði var með liðunum framan af. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11.

Valdimar Þórsson skoraði flest mörk HK-inga í kvöld, sex talsins og þar af þrjú úr víti. Þrír leikmenn voru með fjögur mörk.

Sigurbergur Sveinsson skoraði átta mörk fyrir Hauka og Andri Stefan fjögur. Aðrir leikmenn voru með tvö mörk eða færri.

HK, Fram og Haukar eru öll með fjögur stig en Fram eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×