Gengi hlutabréfa í Straumi rauk upp um 14,43 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, um 4,29 prósent og í Bakkavör um 1,49 prósent.
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll á sama tíma um 2,64 prósent, í Össuri um 0,62 prósent og lækkaði í Færeyjabanka um 0,43 prósent.
Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 1,43 prósent og endaði í 322 stigum.