Skoðun

Frumkvöðullinn

Þórgunnur Oddsdóttir skrifar
Hann fékk hugmyndina einn sunnudag þegar fjölskyldan fór í bíltúr um nýju íbúðahverfin á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem hann stóð og virti fyrir sér fokheld hús og grunna sem verktakar höfðu náð að steypa áður en peningarnir kláruðust áttaði hann sig á því að þetta var vannýtt auðlind. Mánuði síðar hafði hann stofnað lítið sprotafyrirtæki og var kominn í blússandi ferðamannabisness.

Hann vissi af sambærilegri þjónustu erlendis. Í Úkraínu var til dæmis hægt að panta sér ferðir til draugaborgarinnar Chernobyl svo hann var ekki í nokkrum vafa um að fólk myndi flykkjast til Íslands til þess að skoða íslensku draugahverfin þar sem glænýir steinkumbaldar standa mannlausir í hrönnum. Minnisvarðar um mesta góðæri Íslandssögunnar, afspyrnu ljótan byggingarstíl og skammsýni fámennrar þjóðar sem gleymdi að reikna hversu marga steinsteypta fermetra þarf undir 300 þúsund hræður.

Þetta voru dagsferðir sem hann bauð uppá og þær seldust vel. Yfirleitt sótti hann ferðalangana á Keflavíkurflugvöll og brunaði með þá beint í úthverfi borgarinnar sem tóku þögul og mannlaus á móti þeim. Eftir notalega nestispásu í ónotaðri Bauhaus-skemmunni við Vesturlandsveg var brunað upp í Kópavog og þaðan í Garðabæ þar sem ferðalangarnir tóku myndir af sér brosandi fyrir framan óseljanlegar blokkir og kyrrstæða byggingarkrana.

Á leiðinni niður í miðbæ var hann vanur að staldra aðeins við í Borgartúninu þar sem hann rukkaði fólkið um nokkrar evrur fyrir að fá að hlusta á tónverkið sem verður til þegar vindurinn blæs í gegnum hálfbyggðan turninn við Höfðatorg. Þaðan var haldið í grunn tónlistar- og ráðstefnuhússins en þar hélt hann stuttan fyrirlestur og sýndi ljósmyndir af ókláruðum nýbyggingum utan höfuðborgarsvæðisins.

Svo svaraði hann fyrirspurnum. „Ef þið áttuð svona mikla peninga af hverju byggðuð þið þá svona ljót hús?" var algengasta spurningin og hann kom sér iðulega undan því að svara henni með því að smala liðinu upp í rútuna á ný og rifja upp ferðaáætlunina. Vallahverfið í Hafnarfirði var næsti áfangastaður og síðan var það rúsínan í pylsuendanum. „Við ætlum að taka smá krók á leiðinni út á Keflavíkurflugvöll og kíkja í kaffi til konu í Grindavík sem býr alein í nýbyggðri sjö hæða blokk," tilkynnti hann og það brást ekki að allir tóku andköf.

Sigling um Jökulsárlón eða ganga á Hvannadalshnjúk í miðnætursól næðu aldrei að toppa þetta.

 




Skoðun

Sjá meira


×