Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um 3,08 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Þetta er eina hækkun dagsins. Á sama tíma hefur gengi bréfa Marel Food Systems lækkað um 1,88 prósent.
Átta viðskipti upp á tæpar nítján milljónir króna standa á bak við hlutabréfaveltuna í dag.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,17 prósent og stendur hún í 253 stigum.