Handbolti

Sverre: Verðum greinilega að fara erfiðu leiðina

Sverre í baráttunni á Hlíðarenda í kvöld
Sverre í baráttunni á Hlíðarenda í kvöld Mynd/Anton
"Það er erfitt að mæta á þennan völl en það þýðir ekkert að vera hræddur og fela sig," sagði Sverre Jakobsson, leikmaður HK eftir tapið gegn Val í kvöld.

"Við vorum að kasta dálítið frá okkur boltanum og það er rosalega dýrt í svona leik. Við ætlum okkur að vinna þessa rimmu og verðum greinilega að fara erfiðu leiðina í þessu," sagði Sverre. En hvað þarf HK að laga fyrir næsta leik sem er í Digranesi á mánudagskvöldið?

"Við verðum að laga hjá okkur sóknarleikinn og vera aðeins kaldari og njóta þess að spila. Tiltrúin sem var hjá okkur fyrir leik datt dálítið niður, en við vorum aldrei alveg út úr þessum leik fyrr en í restina. Maður fer víst ekki í gegn um þetta án þess að tapa og ég er bara bjartsýnn á næsta leik," sagði Sverre.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×