Listgreinar bítast um Ó. Johnson & Kaaber hús 18. febrúar 2009 06:00 bíómenn taka húsið út Að sögn Halldórs Þorgeirssonar er húsið frábært sem rammi um kvikmyndaþorp í Reykjavík. Hann og Ari Kristinsson fara fyrir hópi kvikmyndagerðarmanna sem vilja húsið.fréttablaðið/Stefán
Kvikmyndagerðarmenn eru áhugasamir um Ó. Johnson & Kaaber húsið við Sætún. Þar með er brostin á samkeppni um húsið milli listgreina. „Við höfum mikinn áhuga á að taka þetta yfir. Og má segja að þessir hópar séu að keppa. Þau vilja gera þarna einhvers konar listasafn. Við viljum sjá greinina flytja inn í þessi hús, gera þarna kvikmyndaþorp með stúdíói og öllu tilheyrandi. Þarna er allt fyrir hendi," segir Halldór Þorgeirsson kvikmyndagerðarmaður. Brostin er á samkeppni milli myndlistarmanna og kvikmyndagerðarmanna um Ó. Johnson & Kaaber húsið við Sætún. Húsið er í eigu Landfesta, eignarhaldsfélags Kaupþings banka hins nýja, sem á allt húsnæði sem Kaupþing gamla átti, hefur eignaðst að undanförnu og mun eignast. „Þeirra verk er að koma þessu frá sér á viðeigandi verði," segir Halldór sem fer fyrir hópi kvikmyndagerðarmanna ásamt Ara Kristinssyni. En bíómenn eru ekki einir um hituna. Um helgina greindi Morgunblaðið frá hugmyndum um að hópur myndlistarmanna, undir forystu greifynjunnar Francescu von Habsburg, hafi fullan hug á að koma á fót miklu listasafni í húsinu. Ásamt von Habsburg kemur að málum dánarbú Dieters Roth. Samkvæmt Morgunblaðinu lýsir von Habsburg sig reiðubúna til að leggja til 150 milljónir til endurbóta á húsnæðinu. „Ef listir geta einhvern tíma komið til hjálpar, þá er það á tímum sem þessum!" hefur Einar Falur Ingólfsson eftir greifynjunni í Mogga. „Dýrt er að breyta húsnæði í listasafn. Við í okkar grein erum ánægð með húsakynnin eins og þau eru. Erum ekki vön að hafa þetta fínna," segir Halldór. Hann segir húsnæðið henta kvikmyndagerðinni vel. Er það óformlegur hópur kvikmyndgerðarmanna sem að málum kemur auk SÍK (Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðanda) en SÍK myndi ekki reka húsið ef til þess kæmi heldur yrði stofnað sérstakt félag um starfsemina. „Innan SÍK eru fjörutíu félög," segir Halldór sem telur húsið ákjósanlegt sökum eðlis þessara félaga sem þenjast út og dragast saman eftir verkefnastöðu. „Þá myndi ekki þurfa að henda búningum og leikmyndum en hent hefur verið ógrynni á undanförnum árum því enginn hefur efni á að halda þessu í geymslu." Hópurinn stefnir að því að senda inn tilboð öðru hvorum megin við helgina en fyrir liggur að Kaupþing mun láta hæstbjóðanda eftir húsið. „Já, brostin er á mikil samkeppni milli kvikmyndagerðarmanna og myndlistarmanna. And may the best man win," segir Halldór. jakob@frettabladid.is
Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ísland með auga fuglsins Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira