Tveir kæra misnotkun presta 16. september 2010 06:00 johannes gijsen Fyrrum biskup við sálumessu í Landakotskirkju. fréttablaðið/vilhelm
Fyrrum biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, Johannes Gijsen, hefur verið sakaður um kynferðislega misnotkun. Fjölmiðlar erlendis fjölluðu um málið í gær og eiga atburðirnir að hafa átt sér stað þegar Gijsen var kennari í Rolduc, kaþólskum skóla í Hollandi, á 6. og 7. áratugnum. Eftir hrinu ásakana um misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar víðs vegar í heiminum hóf kirkjan í Hollandi að skoða mál þar í landi. Að minnsta kosti 1.600 ásakanir hafa verið skráðar, en Gijsen er hæst setti presturinn sem sakaður hefur verið um brot. Tveir menn hafa sakað fyrrum biskup um kynferðislega misnotkun og segja þeir að hann, ásamt öðrum presti, hafi misnotað þá margsinnis á herbergi þeirra í Rolduc. Annar maðurinn fer ekki fram á skaðabætur heldur að Gijsen gangist við brotum sínum og biðjist afsökunar. Saksóknarar og rannsóknarmenn innan hollensku kirkjunnar rannsaka nú málið en Gijsen, sem er 78 ára, harðneitar sök. Johannes Gijsen var kaþólskur biskup á Íslandi á árunum 1996 til 2007. - sv
Fréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira