Starfsfólk Capacent tekur yfir reksturinn 16. september 2010 05:15 Ingvi Þór Elliðason
Hópur starfsmanna Capacent hefur eignast fyrirtækið eftir að móðurfélagi þess mistókst að semja við viðskiptabanka sinn um niðurfellingu á erlendu láni. Aðrir starfsmenn fyrirtækisins munu á næstu dögum fá tækifæri til að eignast hlut í félaginu. „Þetta er mikið áfall fyrir okkur, þetta var síðasti kosturinn í stöðunni," segir Ingvi Þór Elliðason, forstjóri Capacent á Íslandi. Hann segir markmiðið að rekstur fyrirtækisins haldi áfram, starfsfólkið haldi vinnunni, birgjar fái greitt og viðskiptavinir fái þjónustu. Ekki náðist samkomulag við viðskiptabanka félagsins um niðurfellingu á erlendu láni sem tekið var til að fjárfesta í fyrirtækjum í Danmörku og Svíþjóð. Lánið, sem er í erlendri mynt, var um 700 milljónir þegar það var tekið árið 2007 en hefur hækkað verulega síðan. Félag starfsmannanna mun taka yfir skuldbindingar félagsins, fyrir utan umrætt lán. „Aðalverðmæti fyrirtækisins er starfsfólkið sjálft, og með þessu tryggjum við að reksturinn haldi áfram með óbreyttu sniði," segir Ingvi. Hann segir að leggja verði félaginu til nýtt rekstrarfé, en reksturinn hafi verið réttum megin við núllið undanfarið, þrátt fyrir erfitt efnahagsástand. - bj
Fréttir Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Sjá meira