Þjóðverjinn Sebastian Vettel og Ástralinn Mark Webber á Red Bull náðu fyrsta og öðru sæti í japanska Formúlu 1 kappakstrinum í dag. Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji, en Webber jók stigaforskot sitt í stigakeppni ökmanna úr 11 stigum í 14 með árangri sínum.
Vettel var fremstur á ráslínu og Webber við hlið hans, en Pólverjinn Robert Kubica komst framúr honum um tíma, eða þar til að annað afturhjólið sagði skilið við bílinn fljótlega í mótinu. Eftir þetta var Red Bull mönnum aldrei verulega ógnað og Vettel keyrði öruggur í fyrsta sæti í endamark.
Það gekk þó á ýmsu í mótinu. Bretinn Lewis Hamilton tapaði dýrmætu sæti til landa síns Jenson Button þegar hann tapaði þriðja gírnum, en tókst þó að landa fimmta sætinu á eftir Button.
Undir lok mótsins flaug Þjóðverjinn Nico á Mercdedes harkalega útaf þegar eitthvað brotnaði í bílnum, en hann hafði verið í miklu kappi við Þjóðverjann Michael Schumacher um sæti, en þeir eru liðsfélagar.
Heimamaðurinn japanski Kamui Kobayashi á Sauber sýndi skemmtilega takta í brautinni og heillaði heimamenn með hverjum framúrakstrinum á fætur öðrum. Var honum vel fagnað af löndum sínum eftir að hann kom í endmark.
Lokastaðan
1. Vettel Red Bull-Renault 1:30:27.323
2. Webber Red Bull-Renault + 0.905
3. Alonso Ferrari + 2.721
4. Button McLaren-Mercedes + 13.522
5. Hamilton McLaren-Mercedes + 39.595
6. Schumacher Mercedes + 59.933
7. Kobayashi Sauber-Ferrari + 1:04:038
8. Heidfeld Sauber-Ferrari + 1:09.648
9. Barrichello Williams-Cosworth + 1:10.846
10. Buemi Toro Rosso-Ferrari + 1:12.806
Stigastaðan
1. Webber 220 1. Red Bull-Renault 426
2. Alonso 206 2. McLaren-Mercedes 381
3. Vettel 206 3. Ferrari 334
4. Hamilton 192 4. Mercedes 176
5. Button 189 5. Renault 133
6. Massa 128 6. Force India-Mercedes 60
7. Rosberg 122 7. Williams-Cosworth 58
8. Kubica 114 8. Sauber-Ferrari 37
9. Schumacher 54 9. Toro Rosso-Ferrari 11
Tvöfaldur sigur Red Bull í Japan
