Tónlist

Bretar hrifnir af Hjaltalín

Hljómsveitin Hjaltalín fær góða dóma í Bretlandi fyrir plötu sína Terminal.fréttablaðið/gva
Hljómsveitin Hjaltalín fær góða dóma í Bretlandi fyrir plötu sína Terminal.fréttablaðið/gva

Hljómsveitin Hjaltalín fær mjög góða dóma fyrir aðra plötu sína, Terminal, í bresku tónlistartímaritunum Mojo og Uncut. Mojo gefur plötunni fjórar stjörnur af fimm mögulegum en Uncut gefur henni þrjár stjörnur af fimm.

„Fyrsta lagið Suitcase Man blandar tónlist spagettívestranna saman við West Side Story þar sem gróf rödd Högna Egilssonar fær að njóta sín,“ segir í dómi Mojo, þar sem tónlist Hjaltalín er lýst sem diskó-sálarpoppi. „Þegar líður á plötuna deilir Högni söngnum meira með Sigríði Thorlacius og þá kemur í ljós að hið frábæra leikræna-sálarpopp er ekki bara eftiröpun á New York-stemningu áttunda áratugarins.“

Í dómi Uncut er Högna líkt við söngvara bresku sveitarinnar Elbow og Sigríði líkt við Shirley Bassey. „Þessi sjö manna hálfgerða sinfóníusveit reiðir sig mikið á strengi, básúnur og timpani-trommur. Samt sem áður eru þarna einnig áhrif úr sálar- og diskótónlist. Lögin, sem eru stór í umgjörð, hljóma eins og fínni útgáfan af Elbow og líkindi Högna við Guy Garvey staðfesta þann samanburð.“

Terminal kemur út í Evrópu 24. maí og eru þessir góðu dómar því fyrirtaks kynning á plötunni og gott veganesti. Fyrr á árinu hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta poppplatan, auk þess sem hún varð efst í kjöri tónlistarspekinga Fréttablaðsins yfir bestu plötur síðasta árs.

Hjaltalín leikur á tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói í júní. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×