Skoðun

Hneykslið í ís­lenskum stjórn­málum

Hjörtur Hjartarson skrifar

Í kjölfar hrunsins rak þjóðin ríkis­stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar af höndum sér. Hrunstjórnina. Ráðherrar úr hrunstjórninni settust aftur í ríkisstjórn í kjölfarið. Það er hneykslið í íslenskum stjórnmálum. Þjóðin sem var í losti fyrst eftir hrun er farin að átta sig örlítið.

Núverandi ríkisstjórn er uppsuða úr gömlu hrunstjórninni, að viðbættri bitlausri stjórnarandstöðu síðustu ára. Ríkisstjórn sem þannig er til komin hefði þurft að vera hreinskiptnari og ganga ákveðnari til verks er raunin hefur orðið, ekki síst við uppgjör á hruninu. Reyndar er nærtækt að álykta að ríkisstjórnin sé ófær um slíkt uppgjör.

Vantraustið sem ríkir í garð ríkis­valdsins er hættulegt. Við því þarf að bregðast af ábyrgð. Ekki dugir að skamma almenning og heimta virðingu hans með þjósti. Um ástæður vantraustsins má vísa í þingsályktun sem samþykkt var nýlega með öllum 63 atkvæðum á Alþingi.

Þar segir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu. Fleira kemur til. Orð og gjörðir þurfa að fylgjast að. Ekki nægir að segjast bera ábyrgð en koma sér síðan undan því að axla hana. Mikilvægur þráður raknaði þegar ráðherrar í ríkisstjórninni beittu sér til þess að koma samráðherrum sínum úr hrunstjórninni undan réttvísinni. Málið var persónugert.

Sjálfur forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, kastaði ryki í augu almennings. Hún sló því fram að þeir fjórir fyrrum ráðherrar, sem Alþingi bar að ákveða hvort dregnir yrðu fyrir dóm, hefðu ekki getað komið í veg fyrir hrunið. Kæruefnin á hendur ráðherrum snerust ekkert um það, eins og forsætisráðherra vissi vel. Ráðherrann lét sér einfaldlega sæma að líta framhjá kæruefnunum, en taka samt þátt í atkvæðagreiðslunni. - Engin tilviljun réði því að upp úr sauð 4. október.

Vandséð er hvernig núverandi ríkisstjórn getur áunnið traust á ný. Eins er ófært að leiða Sjálfstæðisflokkinn aftur til valda, hvort sem er með þjóðstjórn eða á annan hátt. Landið þarfnast ríkisstjórnar sem almenningur þorir að treysta og getur borið virðingu fyrir. Stjórnar sem er í aðstöðu til að flytja landsmönnum vondar fréttir og vekja með þeim vonir um leið.

Núverandi meirihluti á Alþingi á að eiga frumkvæði að myndun utanþingsstjórnar og verja slíka stjórn falli. Utanþingsstjórn af því tagi hefði raunar átt að skipa í síðasta lagi daginn eftir útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×