Tiger Woods heldur sínu striki á Chevron meistaramótinu í golfi sem fram fer í Bandaríkjunum og er hann með fjögurra högga forskot þegar keppni er hálfnuð. Chevron meistaramótið er óhefðbundið golfmót fyrir atvinnumenn þar sem að aðeins 18 kylfingar taka þátt og gestgjafinn er sjálfur Tiger Woods.
Woods lék á 66 höggum í gær eða 6 höggum undir pari og er hann samtals á 13 höggum undir pari. Woods hefur ekki náð að vinna mót á þessu ári en árið 2001 er eina árið frá því hann gerðist atvinnumaður árið 1996 þar sem hann hefur ekki sigrað.
Norður-Írinn Graem McDowell er annar á 9 höggum undir pari en hann sigrað á opna bandaríska meistaramótinu og var í lykilhlutverki í Ryderliði Evrópu sem sigraði það bandaríska á Celtic Manor í Wales í haust.
Rory McIlroy, sem einnig er frá Norður-Írlandi er á 8 höggum undir pari líkt og Luke Donald frá Englandi.

Tiger Woods -13
Graeme McDowell -9
Rory McIlroy -8
Luke Donald -8
Paul Casey -6
Ian Poulter -5
Sean O'Hair -5
Hunter Mahan -5
Nick Watney -5
Dustin Johnson -3
Zach Johnson -2
Stewart Cink par
Jim Furyk +1
Camilo Villegas +1
Bubba Watson +1
Anthony Kim +1
Matt Kuchar +2
Steve Stricker +4
Mótið er ávallt haldið á Sherwood vellinum í Kaliforníu en völlurinn er hannaður af Jack Nicklaus. Fyrsta móti fór fram árið 1999 og var haldið á Grayhawk vellinum í Arizona og þar léku aðeins 16 kylfingar. Til samanburðar má nefna að á venjulegu PGA móti eru yfirleitt 150 kylfingar sem taka þátt.

Eins og sjá má á keppendalistanum taka margir af bestu kylfingum heims þátt á þessu móti. Sigurvegurum stórmótana fjögurra er ávallt boðið ásamt stigahæstu kylfingum heimslistans. Þar að auki býður styrktarsjóður Woods fjórum kylfingum á mótið.
Frá árinu 2009 hefur mótið verið formlegur hluti af stigakerfi heimslistans en mótið sjálft telst ekki vera hluti af bandarísku PGA mótaröðinni.
Sigurvegarar mótsins frá upphafi:
2009 Jim Furyk
2008 Vijay Singh
2007 Tiger Woods
2006 Tiger Woods
2005 Luke Donald
2004 Tiger Woods
2003 Davis Love III
2002 Pádraig Harrington
2001 Tiger Woods
2000 Davis Love III
1999 Tom Lehman