Fyrirgefning og áfellisdómar Áhugaleikhússins 28. apríl 2010 06:00
Á morgun sýnir Áhugaleikhús atvinnumanna sitt fjórða örverk um áráttur, kenndir og kenjar. Örverkin sem öll eru kennd við mánuðinn sem þau eru flutt í og eru hugleiðingar um mannlega tilvist í Reykjavík dagsins í dag eru hvert um sig frumsýnd síðasta fimmtudag í mánuði allt þetta ár. Apríl er sagður grimmastur mánaða og lýsir verkið grimmd áfellisdómanna sem fljúga nú um þjóðarþelið. Fyrirgefningin er því efst á baugi í verkinu. Er áhorfendum boðið að taka þátt í einhvers konar friðþægingarathöfn og verður gerningurinn í Hugmyndahúsi háskólanna sem er í gamla Alliance-húsinu sem nú ber heitið Útgerðin. Verður sýningin jafnframt send út á slóðinni herbergi408.is. Leikarar Áhugaleikhúss atvinnumanna munu ríða á vaðið með játningar og leiða athöfnina sem er öllum opin og er ókeypis aðgangur. Hægt er að líta á eldri verk hópsins á sömu slóð eða á síðunni ahugaleikhus-atvinnumanna.com. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir og meðal þátttakenda má nefna Aðalbjörgu Árnadóttur, Árna Pétur Guðjónsson; Hannes Óla Ágústsson, Orra Hugin Ágústsson, Ólöfu Ingólfsdóttur, Arndísi Egilsdóttur, Jórunni Sigurðardóttur, Láru Sveinsdóttur, Magnús Guðmundsson, Mörtu Nordal og Svein Ólaf Guðmundsson. - pbb
Lífið Skroll-Lífið Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira