
Viðurkenning stjórnvalda á Icesave
Sigurður Líndal skrifar í Fréttablaðið og fer fram á að ég rökstyðji fullyrðingu mína í Morgunblaðinu að íslensk stjórnvöld hafi fyrir löngu viðurkennt ábyrgð á lágmarkstryggingu innstæðnanna á Icesave reikningunum. Það er mér ljúft að gera. Fyrst er að nefna samkomulag milli hollenskra og íslenskra stjórnvalda frá 13. október 2008. Það kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarki 20.887 evrur, segir í fréttatilkynningu. Næst er samkomulag við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta 16. nóvember 2008. Það felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Fram kemur í fréttatilkynningu sama dag um málið að kostnaður, umfram það sem eignir bankanna hrökkvi til, muni falla á ríkissjóð. Í báðum tilvikum eru um formlegar og bindandi yfirlýsingar að ræða fyrir framkvæmdavaldið.
Þar með tel ég mig hafa fært rök fyrir fullyrðingu minni. En Sigurður fer fram á að ég tilgreini yfirlýsingar íslenskra stjórnvalda sem skuldbinda íslenska ríkið fyrir Icesave innstæðunum. Það fullyrti ég ekki , heldur að stjórnvöld hefðu fyrir löngu viðurkennt ábyrgð á lágmarkstryggingunni. Það er annað mál hvort þær viðurkenningar skuldbinda ríkið. Eins og Sigurður nefnir getur þurft að koma til samþykkis Alþingis til þess að gjörðir ráðherra öðlist gildi og bindi ríkið. En það er þó ekki einhlítt. Fjármálaráðherra undirritar kjarasamninga og við það öðlast þeir gildi. Ef Alþingi veitir ekki nægu fé til þess að standa við samningana halda þeir engu að síður gildi sínu. Launþegarnir geta væntanlega leitað til dómstóla og fengið dæmd vangreidd laun með þeim rökum að undirritun ráðherra skuldbindur ríkið. Áratugalangur samningur milli ríkis og Reykjavíkurborgar um tugmilljarða króna útgjöld úr ríkissjóði til þess að reisa og reka Tónlistarhús var aðeins undirritaður af tveimur ráðherrum fyrir hönd ríkisins en kom ekki fyrir Alþingi.
En rétt er samt að svara Sigurði og benda á það sem skuldbindur ríkið í þessu máli. Samþykkt Alþingis frá 5. desember 2008 felur ríkisstjórninni að leiða til lykta samninga við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á grundvelli fyrirliggjandi viljayfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar. Þar með staðfestir Alþingi áðurnefndar yfirlýsingar stjórnvalda um ábyrgð ríkisins á Icesave innstæðunum og gerir þær að sínum. Þar með tel ég að ábyrgð ríkisins sé orðin óvéfengjanleg, hafi hún ekki legið fyrir áður. Icesave innstæðueigandi sem ekki fengi lágmarkstryggingu greidda gæti höfðað mál fyrir íslenskum dómstól og fengið sér hana dæmda.
Það er hins vegar skoðun mín að íslensk lög séu alveg skýr í þessum efnum. Innstæðueigendur eiga að fá lágmarkstrygginguna greidda hvað sem á dynur. Í 10. grein laga um innstæðutryggingar eru fortakslaus fyrirmæli til sjóðsins að bæta lágmarkið að fullu. Lögin veita enga undanþágu frá þessari tryggingu, hvorki á grundvelli fjárskorts né almennra erfiðleika fjármálafyrirtækja. Eigi Tryggingarsjóðurinn ekki fyrir kröfunni þá er honum heimilt að taka lán og dugi það ekki til þá verður sá sem gaf lagatrygginguna, það er ríkið sjálft, að hlaupa undir bagga. Það hefur ábyrgð í för með sér að setja lög. Lög skuldbinda ríkisvaldið. Yfirlýsingar um réttindi til handa einstaklingum gilda meðan lögin eru í gildi. Það er dapurlegur málflutningur að halda því fram að þegar á reyni þá eigi lagaákvæðin ekki við og þetta og hitt eigi að valda því að ekkert er að marka gildandi lög, nema fyrir suma, sums staðar. Það er efni í aðra grein að rekja nánar hvers vegna það er mín niðurstaða að lög standi til þess að Icesave innstæðueigendur eigi rétt á lágmarkstryggingu. En að lokum vil ég benda á að ríkisvaldið getur innheimt þann kostnað sem á það fellur vegna Icesave. Áfram verður innheimt gjald í Tryggingarsjóðinn og ef menn læra af reynslunni má vonast til þess að næstu áratugi verði ekki áföll í fjármálakerfinu sem lendi á Tryggingarsjóðnum.
Eðlilegt er að hækka gjald fjármálafyrirtækjanna og á löngum tíma er hægt að innheimta útlagðan kostnað ríkissjóðs. Það mun væntanlega hafa í för með sér eitthvað minni ávinning sparifjáreigenda en hófleg innheimta á ekki að leiða til vandræða, sérstaklega ef sparifé er að minnsta kosti jafnöruggt hér á landi og erlendis. Ef það verður ofan á að neita ábyrgð á innstæðum verða áhrifin miklu alvarlegri en ætla má í fljótu bragði. Íslenskir sparifjáreigendur mun þá leita til útlanda í öryggið. Það verður dýrt fyrir landsmenn.
Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.
Skoðun

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar