92 lög keppa í Þorskastríðinu 27. apríl 2010 10:00 Mysterious Marta vann síðasta Þorskastríð. Nýr sigurvegari verður kynntur á föstudaginn. „
Þetta er stórglæsilegt að fá svona mikinn fjölda," segir Jón Þór Eyþórsson hjá Cod Music. Lokað var fyrir innsendingar á efni í lagakeppnina Þorskastríðið 2010 um síðustu helgi og tóku alls 92 flytjendur þátt. Í fyrra tóku 135 flytjendur þátt í keppninni en þá mátti syngja á hvaða tungumáli sem er. Rúmlega 30 lög voru þá á íslensku og því er fjölgunin mikil í ár á íslensku lögunum. „Ég hefði verið sáttur við 40 til 50 lög. Ég bjóst ekki við að fá mikið meira en það," segir Jón Þór. Hann bætir við að innsendu lögin séu af ýmsum toga. „Eins og venjulega er þetta öll flóran og allar stefnur. Þarna inni eru nýgræðingar og aðrir sem hafa verið í tónlist í mörg, mörg ár." Dómnefnd fer nú yfir öll lögin og verður sigurvegari kynntur í beinni útsendingu á Rás 2 á föstudaginn. Auk Jóns Þórs sitja í dómnefndinni Ólafur Páll Gunnarsson og Matthías Már Magnússon frá Rás 2 og Jón Týril, framkvæmdastjóri G Festival. Í verðlaun eru hljóðverstímar til að fullklára þrjú lög, ársbirgðir af þorskalýsi og svo verður sigurvegaranum flogið til Færeyja þar sem hann mun koma fram á tónlistarhátíðinni G festival 15. til 17. júlí. - fb
Lífið Menning Mest lesið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Fleiri fréttir Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira