
Hvað getum við gert? IV
11. SkjaldborginÞegar til stóð að leggja niður samráðshóp þingmanna um stöðu heimilanna síðast liðið vor, þar eð allar aðgerðir sem von væri á væru fram komnar, fengum við því afstýrt. Við töldum allt betra en ekkert en vöruðum ítrekað við því að hinar sértæku lausnir væru óraunhæfar. Það hefur nú sýnt sig þar sem aðeins 128 mál einstaklinga hafa verið leyst með þeim hætti.
12. Landflótti eða atvinnaÞegar við höfum rætt áhyggjur okkar af því að störf væru að tapast hratt á Íslandi og fólk að flytja af landi brott hefur því jafnan verið svarað á kunnuglegan hátt. Nú hefur komið á daginn að fólksflóttinn er sá mesti frá því á 19. öld. Við höfum reynt hvað við getum til að benda á þau fjölmörgu tækifæri sem eru til atvinnuuppbyggingar og hvað þarf að gera til að þau verði nýtt.
13. Opin og fagleg stjórnsýslaFyrirspurnir framsóknarmanna leiddu í ljós að tugir starfsmanna höfðu verið ráðnir á nokkrum mánuðum án auglýsingar. Líklega hefur engin ríkisstjórn gengið jafnhart fram í því að fara á svig við lög til að raða sínu fólki á jötuna.
14. Fagmennska í stað flokksræðisÉg gerði grein fyrir því á flokksþinginu í fyrra að ég mundi leita ráða hjá þeim sem best þekktu til á hverju sviði óháð flokkstengslum. Margar þeirra lausna sem við höfum talað fyrir hafa komið fram með þeim hætti. Það er því ekki svo að allir flokkar séu lokaðir fyrir utanaðkomandi hugmyndum og reiði sig á pólitík fremur en sérfræðiþekkingu.
15. Staða ríkissjóðsÁbendingar framsóknarmanna um þá hættu sem fylgdi skuldastöðu ríkissjóðs og fullyrðingar um að ríkisstjórnin hefði hvorki gefið réttar upplýsingar um stöðuna né gripið til nauðsynlegra ráðstafana voru líklega meginrót hins linnulausa áróðurs um að framsóknarmenn væru neikvæðir. Síðan þá hefur komið í ljós að staða ríkissjóðs var helmingi verri en ríkisstjórnin fullyrti fyrir kosningar en um leið sannaðist að það sem við höfðum sagt um kostina í stöðunni reyndist líka rétt, þ.e. að staðan þyrfti hreint ekki að vera svo slæm ef gripið yrði til réttra ráðstafana.
16. Óhagkvæmar skattahækkanir og stefnuleysiFrá upphafi höfum við bent á að tilraunir ríkisstjórnarinnar til að skattleggja Ísland út úr kreppu væru óraunhæfar. Gagnrýnt var að í góðærinu hefðu stjórnvöld lækkað skatta. Hin hliðin á þeim peningi er sú að í kreppu hækka menn ekki skatta.
Hvað getum við gert?Framsókn réðist í róttækari endurnýjun en dæmi eru um í íslenskri stjórnmálasögu, innleiddi ný vinnubrögð, sýndi að flokkurinn tekur almannahagsmuni fram yfir flokkshagsmuni. Þrátt fyrir þetta hefur umræða um flokkinn stöðugt verið látin snúast um ímynd úr fortíðinni. Þó ekki of nálæga fortíð og ekki of fjarlæga heldur mjög afmarkað tímabil og hlutdræga söguskýringu á því tímabili. Þetta er gert skipulega til að dreifa athyglinni frá endalausum mistökum stjórnvalda í samtímanum. Þannig þekki ég tiltekin dæmi um fjölmiðlamenn sem liðsinna stjórnvöldum í hvert sinn sem þau lenda í verulegum vandræðum með því að beina athyglinni að umræddri fortíðarímynd.
Framsóknarflokkurinn hefur í nærri heila öld verið flokkur sem byggist á því að leita að hinni rökréttu leið við úrlausn vandamála, fremur en pólitískum kreddum og átt stóran þátt í einhverri mestu framfarasögu 20.aldar - því að breyta Íslandi úr fátækasta landi Evrópu í eitt hið þróaðasta og farsælasta.
Þrátt fyrir bankahrun er landið enn í efstu sætum lista yfir allt frá þjóðartekjum að jafnrétti. Stóra hættan er hins vegar sú að viðbrögðin við hruninu valdi meiri skaða en hrunið sjálft. En þrátt fyrir fjölmörg mistök á undanförnum tveimur árum getum við enn unnið okkur hratt til farsældar á ný. Það er háð því að stjórnmálamenn og aðrir hætti að líta á hrunið fyrst og fremst sem tækifæri til að innleiða pólitískar öfgar.
Rökhyggja og skynsemiÁ undanförnum tveimur árum hef ég kynnst hundruðum framsóknarmanna um allt land sem eiga það sameiginlegt að fórna tíma sínum og leggja á sig ómælda vinnu til að bæta samfélagið. Heilsteyptara og heiðarlegra fólk er vandfundið. Þetta fólk endurbætti flokkinn sinn ekki fyrir sjálft sig heldur vegna þess að það trúir að skynsemdar-miðjustefna sé best til þess fallin að bæta lífskjör samborgaranna.
Strax eftir hrun ræddum við að í því fælist tækifæri til að betrumbæta samfélagið og við byrjuðum hjá okkur sjálfum.
Hvaða flokkur er betur til þess fallinn að ráðast í umbætur og endurnýjun í samfélaginu en flokkurinn sem endurnýjaði sjálfan sig?
Skoðun

Vér erum úr sömu sveit
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

„Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?”
Ingrid Kuhlman skrifar

Réttlát leiðrétting veiðigjalda
Elín Íris Fanndal skrifar

Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur?
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir skrifar

Heiðmörk: Gaddavír og girðingar
Auður Kjartansdóttir skrifar

Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

#blessmeta - önnur grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar