Georg og félagar í nýrri úrklippubók 21. október 2010 12:30 í séð og heyrt Á meðal þess sem finna má í bókinni er mynd af Ólafi Ragnari og Georg á forsíðu Séð og heyrt. „
Þetta er mjög fallegur pakki,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri Nætur-, Dag- og Fangavaktarinnar. Vaktabókin kemur út í dag. Viðhafnarútgáfa af kvikmyndinni Bjarnfreðarson fylgir bókinni sem inniheldur að sögn Ragnars alls kyns dót sem féll til við gerð myndarinnar og þáttanna. „Það er ýmislegt sem hefur ekki komið fram; bréf, póstkort og alls konar hlutir sem við höfum unnið en hafa ekki birst í seríunum,“ segir Ragnar. í nýju ljósi Bókin varpar nýju ljósi á félagana Georg, Ólaf Ragnar og Daníel. „Þessu var safnað saman í úrklippubók. Bókin er tvískipt. Helmingurinn er alls konar dót sem gefur okkur skemmtilega mynd af þessum persónum og þeirra lífshlaupi. Seinni hlutinn er handritið af Bjarnfreðarsyni í heild sinni.“ Frosti Gnarr, stjúpsonur Jóns Gnarr, hannaði bókina og tók efnið saman ásamt Ævari Grímssyni, einum af fimmmenningunum á bak við þættina og myndina. En er ekki búið að mjólka það sem hægt er að mjólka úr Vöktunum? „Jú, ég held það nú. Þetta er lokahnykkurinn. Okkur fannst þegar við fórum að skoða efnið sem strákarnir voru búnir að vinna að það þyrfti að koma út fyrir nördana. Þetta verður líka í takmörkuðu upplagi – ég held að það séu bara 3.000 eintök gerð.“ - afb
Lífið Menning Mest lesið Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Fleiri fréttir Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Sjá meira