
Fjármálakerfi fyrir fólk
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu í ágreiningi um túlkun þeirra samninga sem lágu að baki gengistryggðum lánaviðskiptum. Ríkisstjórnin segir ekki SÍ eða FME fyrir verkum. Þvert á móti tryggja lög sjálfstæði þessara stofnana. Hrunið kennir okkur að við eigum að virða sjálfstæði þeirra, en líka gera til þeirra ríkar kröfur. Atburðir síðustu daga sýna okkur líka að tilmælin voru misráðin og ótímabær – fjármálafyrirtækin eru nú að koma fram með tillögur um hvernig greitt verði af lánunum þar til úr öllum ágreiningi er leyst. Það áttu þau að gera strax í upphafi.
Dómstólar eru líka sjálfstæðir og munu kveða upp úr um niðurstöðu málsins. Við skipum ekki frændur og vini í Hæstarétt og segjum honum ekki heldur fyrir verkum. Ágreining um samninga á að leiða til lykta fyrir dómi og það verður gert í þessu tilviki. Dómur Hæstaréttar frá í júní stendur. Eignarleigufyrirtækin telja dóminn ekki kveða skýrt á um hvað taki við og ágreining þar um þarf því líka að leggja fyrir dómstóla. Dómstólar munu útkljá allan ágreining til fulls.
Óvissa er vissulega þungbær, en mikilvægt er að farið sé að réttum leikreglum. Ótímabær inngrip ríkisins geta valdið því að við léttum byrðum af fjármálafyrirtækjum og ríkisvæðum tjón þeirra. Það má aldrei verða.
Niðurstaða í álitamálum sem enn eru uppi liggur vonandi fyrir fljótlega í haust. Ef samningsvextir einir eiga að gilda, þá þurfum við stjórnmálamenn að vinna úr þeirri stöðu og okkur er engin vorkunn að því. Það kann að verða flókið og dýrt, en það er þá bara þannig. Við skulum fara yfir þann læk þegar við komum að honum.
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu með eignarleigufyrirtækjunum. Þvert á móti er rétt að minna á að við höfum glímt við þessi fyrirtæki mánuðum saman og freistað þess að ná samkomulagi við þau um umbreytingu bílalánanna í íslensk kjör. Þau skynjuðu ekki sinn vitjunartíma þá og virðast ekki gera það enn. Framganga þeirra gagnvart fólki hefur verið óásættanleg og þau hafa haft fullkomlega óraunhæfar væntingar um greiðslugetu og greiðsluvilja fólks. Einmitt þess vegna er í 5. gr. frumvarpsins sem ég lagði fram um bílalánin gert ráð fyrir heimild fólks til að greiða helming af eftirstöðvum bílalána, þegar bíl hefur verið skilað eða að honum gengið og jafnframt bannað að gera fjárnám í íbúðarhúsnæði skuldara vegna skulda vegna bílalána. Full ástæða virðist til að Alþingi afgreiði þennan þátt bílalánafrumvarpsins, þrátt fyrir niðurstöðu Hæstaréttar.
Skilaboðin til fjármálafyrirtækjanna eru skýr: Þau verða að axla byrðarnar af eigin verkum og við munum ekki ríkisvæða það tjón. Þau þurfa að vinna með fólki en ekki í stríði við fólk. Þau þurfa að laga skuldir einstaklinga og fyrirtækja að greiðslugetu. Þau þurfa að snúa baki við starfsháttum fortíðarinnar – lánveitingum með þriðjamannsábyrgðum, gylliboðum og skrumi. Þau þurfa að læra að verðmeta áhættu og að bera hana sjálf, gegn eðlilegu endurgjaldi, en ekki velta henni yfir á þá sem hvorki eru í stakk búnir til að meta hana eða bera hana. Fjármálakerfi er til fyrir fólk – en ekki fólk fyrir fjármálakerfi.
Skoðun

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar