Lögreglan á Selfossi fann einskonar laumufarþega í bíl, sem hún stöðvaði við reglubundið eftirlit í nótt. Fimm manns voru í bílnum, og var mannskapurinn að koma af skemmtistað, en ökumaður var í góðu standi.
Þar sem stemmningin í bílnum var eitthvað þvinguð, datt lögreglunni i hug að skoða í skottið á bílnum, og leyndist þar sjötti maðurinn undir fatahrúgu, en honum var ofaukið miðað við leyfilega fjölda í bílnum. Hann gallaði sig upp og gekk heim.