Viðskipti innlent

MP Banki þarf að greiða Byr 317 milljónir

Valur Grettison skrifar
Byr bar sigurorð af MP Banka.
Byr bar sigurorð af MP Banka.
MP Banki var dæmdur til þess að greiða Byr sparisjóði rétt tæplega 317 milljónir króna í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Byr sakaði MP banka um að hafa stolið um 300 milljón króna vegna kúluláns til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Hansa ehf.

Byr vildi meina að MP Banki hefði selt sameiginlegt veð fyrir láninu án þess að greiða sparisjóðnum hluta af láninu sem var þeirra, eða 317 milljónir.

Það var Sparisjóður Vélstjóra sem veitti Hansa tveggja og hálfs milljarða króna lán árið 2006. Síðar gerðu Byr og MP Banki með sér aðildarsamning þar sem bankinn eignaðist 40 prósent í lánasamningnum. Helstu veð Hansa fyrir kúluláninu voru hlutabréf í Straumi-Burðarás og Landsbankanum.

Rétt fyrir hrunið fór hlutabréfaverð lækkandi sem varð til þess að Hansa lagði fram frekari veð í Landsbankanum vegna lánsins, og greiddi að auki 275 milljónir króna upp í lánið til að koma tryggingahlutföllum í lag.

Fjárhæðin skiptist samkvæmt lánasamningi á milli Byrs og MP Banka. Verðmæti hinna veðsettu hlutabréfa í Landsbankanum héldu hins vegar áfram að lækka og var því var ákveðið að ganga að þeim í október 2008.

Sparisjóðurinn kvaðst hafa fullvissu fyrir því að MP Banki hefði selt hlutabréfin í Landsbankanum, veðin það er að segja, fyrir ríflega hálfan milljarð króna, án þess að greiða sparisjóðnum 60 prósent upphæðarinnar, eða tæplega 317 milljónir króna.

Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur var sú að Byr átti að fá þessi 60 prósent af seldum hlutum í Landsbankanum. Það var Stefán Bj. Gunnlaugsson sem flutti málið fyrir Byr.

MP Banki hefur þrjá mánuði til þess að áfrýja málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×