„Þetta er góð tilfinning. Það er frábært að vera í þessari stöðu en ég var þolinmóður og það skilaði árangri. Ég náði að halda leikáætlun minni frá upphafi til enda og ég er ánægður með það," sagði McIlroy.
K. J. Choi frá Suður-Kóreu, Angel Cabrera frá Argentínu, Jason Day frá Ástralíu og Suður-Afríku maðurinn Charl Schwatrzel eru allir á -8.
Woods leyndi ekki vonbrigðum sínum

Woods leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir að hafa leikið á 74 höggum í dag enda er hann 7 höggum á eftir McIlroy fyrir lokadaginn. Hann missti örstutt pútt fyrir pari á 18. flöt en hann gerði fjölmörg mistök á flötunum og þar má nefna stutt pútt á 11. og 15. Annað högg Woods á 15. braut verður án efa í hávegum haft næstu árin en þar sló hann boltann inn á flöt úr vonlausri stöðu framhjá stórum eikartrjám.
„Ég setti engin pútt ofaní holuna," sagði Woods eftir hringinn. „Ég veit ekki hve oft ég hélt að boltinn væri að fara ofaní en hann gerði það ekki," Woods var þremur höggum á eftir McIlroy þegar keppni var hálfnuð en hann er núna sjö höggum á eftir Norður-Íranum. Hann er samt sem áður ekki búinn að gefa upp alla von. „Ég þarf að ná góðum fyrri 9 holum og síðan þarf ég bara að sjá til hvað gerist. Golfhöggin voru fín hjá mér og sveiflan er ekki vandamálið. Það er bara ekkert að gerast á flötunum," sagði Woods sem hefur fjórum sinnum sigrað á Mastersmótinu og alls 14 sinnum á risamótum.
Mickelson hefur ekki gefið upp alla von

Þrír kylfingar deildu besta skori dagsins með sér í dag en þeir léku allir á -5 eða 67 höggum. Angel Cabrera frá Argentínu, sem sigraði á þessu móti árið 2009, er einn þeirra. Ástralinn Adam Scott, sem var á sínum tíma talinn einn af efnilegustu kylfingum heims, náði loksins að góðum hring á risamóti og lék hann á 67 í dag og er hann samtals á -8 í sjötta sæti. Bubba Watson lék einnig á -5 og er hann á sama stað og Tiger Woods á skortöflunni.
Fred Couples heldur uppi merkjum fyrri sigurvegara mótsins en hinn 51 árs gamli kylfingur er á sama skori og Tiger Woods fyrir lokadaginn.
Phil Mickelson er ekki búinn að gefa upp alla von um að verja titilinn á Mastersmótinu í golfi þrátt fyrir að hann sé 9 höggum á eftir Rory McIlroy frá Norður-Írlandi fyrir lokahringinn. Mickelson hefur þrívegis sigrað á þessu risamóti á undanförnum átta árum en hann lék þriðja hringinn á 71 höggi.
„Það getur allt gerst á sunnudegi á risamót. Ég ætla ekki að gefa upp alla von," sagði meistarinn eftir hringinn í dag. „Ég þarf að fá frábæran dag þar sem ég verð sjóðheitur. Ég hef áður leikið vel á þessum velli og ég trúi því að ég geti gert það á ný." Mickelson var ósáttur við framlag sitt á flötunum í dag og hann telur sig eiga mikið inni í púttunum.
„Ég púttaði vel í Houston og bjóst við að halda því áfram hér á Augusta, ég er ósáttur við púttin," sagði Mickelson sem sigraði á PGA mótinu í Houston um s.l. helgi. „Ég hef ekki lesið brotin í flötunum nógu vel," sagði Mickelson.
Ian Poulter sáttur við golfið en ekki púttin

„Ég held ég hafi ekki leikið svona gott golf í mörg ár," sagði Poulter sem lék á 71 höggi í dag eða -1. „Það er mjög erfitt að eiga við flatirnar á þessum velli, þær eru erfiðar og allt þarf að að ganga upp til þess að boltinn fari rétta leið. Ég nýtti ekki tækifærin sem ég fékk á flötunum. Púttlínan og hraðinn á boltanum þarf að vera 100% og ég var ekki að ná því," sagði Poulter.