Barði var gestur útvarpsþáttarins Vasadiskó á X-inu í gær og fékkst til þess að segja lítillega frá verkinu. Hann vildi ekkert gefa upp um söguþráðinn annað en að hann ætti eflaust eftir að hrista upp í fólki.
"Þetta er ópera á allann hátt nema hvað að söngurinn verður ekki allan tímann eins og í hefðbundnum óperum," sagði Barði. "Persónulega leiðist mér að sitja undir svoleiðis þannig að við ákváðum að hafa sönginn eðlilegri."
Barði mætti í liðinn "Selebb Shuffle" þar sem gestur mætir með mp3 spilara, stingur í samband og setur á Shuffle. Barði mætti reyndar með fartölvuna sína þar sem hann notar ekki iPod eða aðra mp3 spilara að staðaldri.
Lögin sem komu upp voru þessi:
Suicide - Ghost riders
M83 - Un-recorded
The Stooges - 1969
Wire - the 15th
Trentemöller - Moan (vocal remix)
Daft Punk - Veridisquo
Yeah yeah yeahs - maps
The Stone Roses - i wanna be adored
Lögin má nálgast hér.
Fylgist með Vasadiskó á Facebook.