Aðeins eru rúmar tvær vikur síðan að borðin voru sett í vatnsmiðlunina í Langavatni. Líkt og segir er miðlunin nú þegar komin á yfirfall og því ljóst að sex til sjö vikna vatnsforði er fyrir hendi í Langavatni fyrir komandi veiðisumar.
Það er þó merkilegt að enn er talsvert eftir af snjó í fjöllum í kringum Langá, og því von á talsverðri snjóbráð þegar að loks hlýnar í veðri. Síðustu tvö ár hafa verið rosalega erfið vegna vatnsleysis í ánni og þá sérstaklega árið í fyrra. Það ringdi ekkert í margar vikur og áin gerði ekkert annað en að hrynja í vatni eins og flestar ár á suðvesturlandi. Þetta gerði það að verkum að miðsvæðið svokallaða, frá Hornhyl og niður að Glanna var ekki svipur hjá sjón. Fullt af flottum stöðum sem héldu ekki laxi vegna vatnsleysis.

Öll veiðileyfi eru uppseld í júnímánuði, og hið sama má nánast segja um júlímánuð, aðeins tvær stangir eftir dagana 27-30. júlí. Miðað við vatnsstöðuna þetta árið ætti að vera óhætt að mæla með þeim stöngum. Upplýsingar má fá á skrifstofu SVFR.