Tónlist

Bein útsending frá tónleikum GusGus

Daníel Ágúst Haraldsson, söngvari GusGus.
Daníel Ágúst Haraldsson, söngvari GusGus. Mynd/Anton Brink
GusGus efnir til útgáfutónleika á Nasa við Austurvöll í kvöld. Um er að ræða tvenna tónleika og eru þeir fyrri í beinni útsendingu hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en tónleikarnir hefjast klukkan 21.

Nýjasta plata GusGus, Arabian Horse, er að gera allt vitlaust og hefur fengið toppdóma. Á plötunni stillir GusGus upp einvalaliði, með söngvarana Daníel Ágúst, Urði Hákonardóttur og Högna Egilsson í Hjaltalín í forgrunni og skipstjóra sveitarinnar, þá Stebba Steph og Bigga Veiru, við stjórnvölinn.

GusGus er þekkt fyrir ótrúlega kraftmikla tónleika og því má búast við góðu kvöldi.




Tengdar fréttir

Útgáfutónleikar Gusgus í beinni á Vísi í kvöld

Gusgus blæs til útgáfutónleika á Nasa í kvöld vegna nýjustu plötu sveitarinnar, Arabian Horse. Um er að ræða tvenna tónleika og uppselt er í forsölu á þá báða, en einhverjir miðar verða seldir í hurð. Þeir sem ekki komst á þessa tímamótatónleika geta glaðst vegna þess að fyrri tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi sem hefst klukkan 20:00.

Röð fyrir utan NASA - styttist í tónleika GusGus

Á áttunda tímanum í kvöld hafði myndast dágóð röð fyrir utan NASA við Austurvöll vegna útgáfutónleika nýjustu plötu GusGus, Arabian Horse. Um er að ræða tvenna tónleika og uppselt er í forsölu á þá báða, en einhverjir miðar verða seldir í hurð. Þeir sem ekki komst á þessa tímamótatónleika geta glaðst vegna þess að fyrri tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en sjálfir tónleikarnir hefjast síðan klukkan rúmlega 21.

Högni kann mjög vel við að vinna með GusGus

"Það var engin sérstök vígsluathöfn haldin. En jú jú, ég er orðinn meðlimur í GusGus. Ég kem fram með sveitinni á tónleikum og tók þátt í gerð nýju plötunnar. Mér finnst bara gaman að vera í stuði með góðu fólki," segir tónlistarmaðurinn Högni Egilsson, sem einnig er þekktur sem Högni í Hjaltalín. Hann syngur og tók þátt í sköpun þriggja laga á plötu GusGus, Arabian Horse, sem kom út fyrir skömmu og hefur hlotið nánast einróma lof gagnrýnenda og frábærar viðtökur almennings. Högni stígur einmitt á svið á útgáfutónleikum sveitarinnar, raunar tvennum, sem haldnir verða í kvöld á Nasa. Fyrri tónleikarnir verða sýndir í beinni útsendingu hér á Vísir.is. Útsendingin hefst klukkan 20:30 en tónleikarnir klukkan 21.

Færð þú fría miða á Gusgus tónleikana?

Vísir gefur einum heppnum lesanda Lífsins sem deilir leiknum og kvittar á Facebooksíðuna hérna tvo miða á útgáfutónleika Gusgus í kvöld á Nasa. Vinningshafi ræður hvort hann sækir fyrri eða seinni tónleikana en uppselt er í forsölu á báða. Þeir sem ekki komast á þessa tímamótatónleika geta glaðst því fyrri tónleikarnir verða sýndir í beinni útsendingu á Lífinu á Vísi sem hefst klukkan 20:00. Kvittaðu hér ef þú vilt eiga möguleika á að vinna tvo miða á Gusgus í kvöld. Drögum út vinningshafa á slaginu 17:00 í dag. Sjö eintök af plötunni Arabian Horse eru einnig í verðlaunapottinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×