Vettel fremstur á ráslínu í sjötta skipti á árinu 11. júní 2011 19:11 Sebastian Vettel fagnar árangrinum í dag. Mynd: AP/Graham Hughes
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökum í sjötta skipti á árinu, þegar hann náði besta tíma á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kanadíska kappakstrinum sem fer fram á morgun. Fernando Alonso náði næst besta tíma í tímatökunni og Felipe Massa liðsfélagi hans hjá Ferrari var þriðji sneggstur um brautina. Sex mót hafa farið fram og Vettel hefur unnið 5 þeirra, en Lewis Hamilton eitt. Vettel varð 0.185 úr sekúndu á undan Alonso í tímatökunni í dag og 0.203 á undan Massa. Mark Webber á Red Bull varð fjórði fljótastur í dag, en Lewis Hamilton á McLaren fimmti. Hamilton vann mótið í Montreal í fyrra. Vettel er efstur í stigamóti ökumanna með 143 stig, Hamilton er með 83, Webber 79, en Jenson Button hjá McLaren er með 76 stig og Alonso 69. Bein útsending verður frá kappakstrinum á morgun á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 16.30 og verður hún í opinni dagskrá. Tímarnir af autosport.com 1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m13.014s 2. Fernando Alonso Ferrari 1m13.199s + 0.185 3. Felipe Massa Ferrari 1m13.217s + 0.203 4. Mark Webber Red Bull-Renault 1m13.429s + 0.415 5. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m13.565s + 0.551 6. Nico Rosberg Mercedes 1m13.814s + 0.800 7. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m13.838s + 0.824 8. Michael Schumacher Mercedes 1m13.864s + 0.850 9. Nick Heidfeld Renault 1m14.062s + 1.048 10. Vitaly Petrov Renault 1m14.085s + 1.071 11. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m14.752s + 1.321 12. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m15.043s + 1.612 13. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m15.285s + 1.854 14. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m15.287s + 1.856 15. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m15.334s + 1.903 16. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m15.361s + 1.930 17. Pedro de la Rosa Sauber-Ferrari 1m15.587s + 2.156 18. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m16.294s + 2.472 19. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m16.745s + 2.923 20. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m16.786s + 2.964 21. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m18.424s + 4.602 22. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m18.537s + 4.715 23. Narain Karthikeyan HRT-Cosworth 1m18.574s + 4.752 24. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m19.414s + 5.592
Formúla Íþróttir Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira