Veiði

Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar

Karl Lúðvíksson skrifar
Norðurá er með flesta veidda laxa á landinu í sumar.
Norðurá er með flesta veidda laxa á landinu í sumar. Mynd af www.svfr.is
Þá er kominn nýr listi frá Landsambandi veiðifélaga þar sem við sjáum stöðuna í ánum. Veiðin hefur verið góð en það vekur þó smá eftirtekt hvað Rangárnar eru langt á eftir veiðinni í fyrra. Ágúst hefur þó alltaf verið gífurlega sterkur í þeim og það má alveg reikna með yfir 2000 löxum veiddum úr hvorri á í þessum mánuði.

Annars er topp 10 listinn frá LV hér:

VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2010
Norðurá3. 8. 20111775142279
Blanda3. 8. 20111569162777
Þverá + Kjarará3. 8. 20111272143760
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.3. 8. 20111192206210
Eystri-Rangá3. 8. 20111137186280
Selá í Vopnafirði3. 8. 2011106272065
Haffjarðará3. 8. 2011100261978
Miðfjarðará3. 8. 2011953104043
Elliðaárnar.3. 8. 201184561164
Langá3. 8. 2011815122235
En ef við skiptum þessum lista upp eftir fjölda laxa á viku verður hann svona:

1. Eystri Rangá með 545 laxa á 18 stangir

2. Ytri rangá með 471 lax á 20 stangir

3. Blanda með 379 laxa á 16 stangir

4. Norðurá með 325 laxa á 14 stangir

5. Þverá/Kjarrá með 270 laxa á 14 stangir

6. Selá í Vopnafirði með 264 laxa á 7 stangir

7. Miðfjarðará með 249 laxa á 10 stangir

8. Haffjarðará með 248 laxa á 6 stangir

9. Langá með 137 laxa á 12 stangir

10. Elliðaá með 129 laxa á 6 stangir

En ef við síðan skoðum fjölda laxa á stöng á dag þá er Haffjarðará með tæpa 6 laxa á stöng á dag og Selá með 5. Veiðin virðist því vera feiknagóð í vikunni og við reiknum samt með að næsta vika í þessum tölum verði jafnvel enn betri enda ætti Rangárnar þá að koma sterkar inn.

Listinn í heild sinni er hér: https://angling.is/is/veiditolur/






×